
Með breytingum á ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, hefur forystumönnum stjórnarflokkanna tekizt að sá frækornum óánægju, sem geta átt eftir að vaxa og dafna. Það kemur fram í eftirfarandi:
Fulltrúar gamla Alþýðuflokksins innan Samfylkingar hafa verið þurrkaðir út úr ríkisstjórn. Augljóst er að fyrrum forystumenn Alþýðubandalagsins fagna þessari þróun og þarf ekki annað en líta á heimasíðu Svavars Gestssonar til þess að átta sig á því, þótt hann komi fögnuði sínum á framfæri með því að vitna í Pressuna. Þótt mjög sé nú af gömlum Alþýðuflokksmönnum dregið er þó ólíklegt að þeir taki þessari framvindu mála þegjandi. Spurningin er fyrst og fremst sú, hvort þeir geri það innan eða utan Samfylkingar. Sumir velta því fyrir sér, hvort þeir geti náð saman við ESB-sinna í Sjálfstæðisflokknum. Það er heldur ólíklegt en á þó eftir að koma í ljós. Kannski er þarna að opnast tækifæri fyrir einn fyrrverandi formann Alþýðuflokksins, sem enn hefur virkan áhuga á pólitík?
Í þingflokki Samfylkingar er augljóslega megn óánægja með að Ögmundur Jónasson skuli kominn inn í ríkisstjórn á ný og efasemdir um að hann verði til friðs þar. Þetta kom skýrt í ljós í samtali RÚV í gærkvöldi við Sigríði Ingadóttur, alþingismann. Hörð gagnrýni hennar á ráðherradóm Ögmundar endurspeglar ákveðinn veruleika í þingflokki Samfytlkingar, sem birtist þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, sem stífar áþreifingar um nýtt stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Það er heldur ólíklegt að Ögmundur Jónasson hagi störfum sínum á þann veg, að hann friðmælist við þetta fólk innan Samfylkingarinnar. Í öllum flokkum kunna menn illa tilburðum Samfylkingarmanna til þess að ráða ráðherravali annarra flokka.
Innan Samfylkingar er augljóslega óánægja með lakari hlut kvenna í ríkisstjórn. Tilraunir Guðbjarts Hannessonar í Kastljósi í gærkvöldi til þess að setja þann þátt málsins í annað ljós með því að vísa til annarra trúnaðarstarfa kvenna á vegum Samfylkkingar eru gamalkunnar. Á þann veg tala allir karlar í stjórnmálum og hafa lengi gert, þegar þeir þurfa að útskýra lakari hlut kvenna!
Það er almenn skoðun, að með því að taka Ögmund inn í ríkisstjórn á ný hafi þeim Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni tekizt að koma á betri friði í stjórnarherbúðum. Það má vera að það sé rétt, þegar til skemmri tíma er litið. En sú staðreynd ein, að Álfheiður Ingadóttir fer út og Ögmundur inn er auðvitað staðfesting á því að órólega deildin í VG hefur haft sigur.
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Línur skýrast varðandi varnarlínur BÍ
Jón Bjarnason komst aldrei til Brussel á meðan hann var sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til að fá skýringar á skilyrðum ráðherraráðs og framkvæmdastjórnar ESB fyrir viðræðum við Íslendinga um landbúnaðarmál.
Ágreiningur um efni og form – ESB setur skilyrði vegna landbúnaðarmála
Ákvörðun búnaðarþings 9. mars 2011 um varnalínur bænda var kynnt ríkisstjórninni föstudaginn 1. apríl 2011 þegar Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, lagði samþykkt þingsins um málið fyrir ríkisstjórnina og sendi síðan frá sér tilkynningu um málið hinn 5. apríl 2011. Þar kom fram að ...
Bændur samþykkja varnarlínur gegn ESB
Bændasamtök Íslands (BÍ) hafa á skipulegan og málefnalegan hátt fylgst með framvindu ESB-aðildarumsóknar Íslands frá því að hún kom til sögunnar 16. júlí 2009. Þau hafa jafnframt fylgt málstað sínum og afstöðu fram af þunga. Hér verður í fjórum greinum rætt um málatilbúnað bændasamtakanna og stöðu l...
Hæll Akkilesar er mest allra líkamshluta í umræðunni þessi misserin vítt og breitt um heiminn og ekki sízt í Evrópu. Það, sem átt er þá við, er evran. Sameiginlega myntin, sem verið hefur 12 ár við lýði, er að ganga af hagkerfi margra Evrópulanda dauðu, en hagkerfi, sem ekki getur séð þegnum sínum nokkurn veginn fyrir fullri vinnu til langframa, er einskis nýtt og raunar dautt.