Miðvikudagurinn 19. júní 2013

Ástralía: Fékk höfuðhögg tók að tala ensku með frönskum hreim

12:10 Áströlsk kona tók að tala ensku með frönskum hreim eftir að hún vaknaði eftir umferðarslys þar sem hún hlaut höfuðhögg. Um er að ræða sjaldgæft heilkenni sem um 60 manns hafa greinst með á 100 árum segir í blaðinu Le Figaro. Leanne Rowe hefur aldrei farið til Frakklands og á enga franska vini.

 

Grikkland: Leiðtogar stjórnar­flokka funda síðdegis um ERT

10:49 Leiðtogar stjórnar­flokkanna þriggja á Grikklandi koma saman til fundar síðdegis í dag til þess að reyna að ná samkomulagi um örlög og framtíð gríska ríkisútvarpsins-sjónvarps. Samkvæmt úrskurði stjórnlagadómstóls Grikklands sl. mánudag hafði ríkis­stjórnin leyfi til að loka ERT en ekki að slökkva á útsendingu. Stjórnar­flokkarnir hver um sig túlka þessa niðurstöðu eins og þeim hentar.

 

NSA og FBI hafa hindrað rúmlega 50 tilraunir til hryðjuverka síðan 11. september 2001

09:56 Þjóðaröryggis­stofnun Bandaríkjanna (NSA) og Alríkislög­regla Bandaríkjanna (FBI) hafa að eigin sögn komið í veg fyrir að minnsta kosti 50 tilraunir til hryðjuverka frá 11. september 2011. Google-fyrirtækið hefur óskað eftir að fá að birta hvernig þátttöku þess í verkefnum gegn hryðjuverkum hefur veri...

 

Forseti Kýpur fer fram á allsherjar endurskoðun björgunaraðgerða

09:03 Nikos Anastasiades, forseti Kýpur hefur skrifað leiðtogum evru­svæðisins bréf og farið fram á allsherjar endurskoðun á þeim skilmálum, sem Kýpur tók á sig vegna björgunarláns að upphæð 10 milljarðar evra. Í bréfinu segir forsetinn að Kýpur geti ekki uppfyllt þessa skilmála vegna þess að aðgerðirnar hafi skaðað efnahag landsins og bankakerfið meira en búizt var við.

 

Bretland: Æðstu stjórnendur banka eiga yfir höfði sér fangelsisdóma og tekjumissi skv. tillögum banka­nefndar

08:32 Nefnd, sem fjallar um nýtt regluverk fyrir banka í kjölfar fjármálakreppunnar og starfar í tengslum við brezka þingið leggur til að æðstu stjórnendur banka skuli eiga yfir höfði sér fangelsisdóma og missi milljóna punda í bónus­greiðslum ef þeir eigi þátt í falli banka í framtíðinni. Nefndin er þverpólitísk og í henni sitja bæði þingmenn og aðrir.

 

Einar K. Guðfinnsson, forseti alþingis, ræðir stöðu Íslendinga í sam­félagi þjóðanna í hátíðarræðu

Í gær Einar K. Guðfinnsson, forseti alþingis, flutti þjóðhátíðarræðu mánudaginn 17. júni í Búðardal. Hann vék meðal annars að stöðu Íslands og Íslendinga í sam­félagi þjóðanna og sagði: „Svo sannarlega erum við Evrópu­þjóð en það þýðir ekki að við viljum verða Evrópu­sambandsþjóð.“ Hér birtist kafli úr ræðu...

 

Viðskipta­viðræður ESB og BNA: Harka hlaupin í deilur milli Barrosos og Hollandes vegna fyrirvara um menningarmál

Í gær José Manuel Barroso, forseti framkvæmda­stjórnar ESB, sætir harðri gagnrýni franskra stjórnvalda vegna ummæla í viðtali við dagblaðið The Internartional Herald Tribune (IHT) sem birtist mánudaginn 17. júní þar sem hann segir það „afturhaldssemi“ að Frakkar vilji halda hljóð- og myndframleiðslu utan ...

 

Tvíhliða viðskipta­viðræður ESB og BNA formlega hafnar

Í gær David Cameron, forsætis­ráðherra Bretlands, kynnti mánudaginn 17. júní fyrir fund G8 ríkjanna á Norður-Írlandi áform um „stærsta tvíhliða viðskiptasaming í sögunni“ milli ESB og Bandaríkjanna. Barack Obama Bandaríkja­forseti sagði að fyrsta viðræðulota vegna samninganna yrði í Washington í júlí. Stef...

 

Finnland: Meirihluti andvígur aðild að Atlantshafsbandalaginu

Í gær Meirihluti Finna eða um 52% telur að Finnland eigi ekki að gerast aðili að Atlantshafsbandalaginu. Þetta hlutfall hækkaði í 59%, þegar spurt var um afstöðu til aðildar að NATÓ ef Svíar gerðust aðilar. Einungis 28% sögðust vilja feta í fótspor Svía. Sér­fræðingar segja að þessi könnun sýni að engin breyting hafi orðið á afstöðu Finna.

 

Obama kemur til Berlínar í kvöld-fer ekki til Brussel

Í gær Obama Bandaríkja­forseti kemur til Berlínar í kvöld, þriðjudagskvöld en hann fer ekki til Brussel. Vefmiðillinn euobserver, sem fjallar um málefni Evrópu­sambandsins hefur orð á þessu í dag og bendir á að Obama hafi ekki heimsótt Brussel frá því að hann var kjörinn forseti. Vefmiðillinn kallar þetta „snub“ eða snuprur.

 

Þjóðverjar minnast uppreisnarinnar í A-Berlín 17. júní 1953

Í gær Þess var minnzt í Þýzkalandi í gær, 17. júní, að 60 ár voru liðin frá uppreisninni í Austur-Berlín þann dag, árið 1953. Joachim Gauck, forseti Þýzkalands var 13 ára þá og átti heima í Rostock. Hann sagði í ræðu í þýzka þinginu sl. föstudag að hann myndi vel eftir þeirri hrifningaröldu, sem hefði ge...

 

Grikkland: Dómstóll frestar lokun ríkisútvarpsins

Mán Stjórnsýsludómstóll Grikklands hefur frestað ákvörðun ríkis­stjórnar landsins um að loka ríkisútvarpinu, ERT. Dómstóllinn sagði mánudaginn 17. júní að ERT gæti starfað áfram þar til nýtt ríkisútvarp kæmi til sögunnar. Deilur hafa verið um lokun ERT síðan Antonis Samaras forsætis­ráðherra tók ákvörðun...

 

Birgir Ármannsson segir Damanaki kikna undan þrýstingi ESB-þingmanna

Mán Birgir Ármannsson, formaður utanríkis­mála­nefndar alþingis, sagði við fréttastofu ríkisútvarpsins mánudaginn 17. júní að Maria Damanaki, sjávar­útvegs­stjóri ESB, hefði mælt harkalega í garð Íslendinga á ESB-þinginu í síðustu viku vegna þrýstings frá þingmönnum. Sigurður Ingi Jóhannsson sjávar­útvegsráð...

 

17. júní: Forsætis­ráðherra tekur upp hanskann fyrir forseta - segir ESB verða að sanna sig gagnvart Íslandi

Mán Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis­ráðherra brá skildi fyrir Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, í þjóðhártíðarávarpi sínu á Austurvelli mánudaginn 17. júní þegar hann lýsti undrun yfir að menn hefðu efast um hvort við­eigandi hefði verið fyrir forseta að ræða fullveldismál við þingsetningu. Sig...

 

Grænland: Áform um laxveiðar í sjó valda áhyggjum

Mán Áform Grænlendinga um laxveiðar í sjó valda áhyggjum nágrannaríkja segir á vefmiðlinum Alaska Dispatch. Þar kemur fram, að Grænlendingar hafi ekki stundað laxveiðar í sjó í áratug í þágu verndunaraðgerða. Nú hafi þeir hins vegar tilkynnt um stefnubreytingu, sem hafi verið rædd á fundi á Írlandi fyrr í þessum mánuði en sá fundur hafi ekki borið árangur.

 

Þrýstihópur gegn alþjóða­væðingu: Björgunarlánin til Grikkja hafa farið til banka og fjárfesta

Mán Þrýstihópur gegn alþjóða­væðingu, sem kallar sig Attac hefur unnið skýrslu sem þýzka fréttastofan Deutsche-Welle segir frá, þar sem leitast er við að sýna fram á hvert björgunarlánin til Grikklands hafi farið. Niðurstaðan er sú, að megnið af peningunum hafi farið til banka.

 

Noregur: Strandveiðimenn hafa áhyggjur af laxeldi

Mán Samtök strandveiðimanna í Noregi (Norges Kystfiskarlag) hafa meiri áhyggjur af áhrifum laxeldis á fiskinn í hafinu en nýjum ákvörðunum um kvóta á þorski og ýsu að því er fram kemur á Barents Observer. Arne Pedersen, formaður samtakanna sagar í sundur frosna ýsu og sýnir blaðamanni hvað maginn inniheldur.

 

Grikkland: Leiðtogar stjórnar­flokkanna ræða ERT-málið í kvöld

Mán Leiðtogar grísku stjórnar­flokkanna hittast kl. hálf átta í kvöld tl þess að reyna að ná samkomulagi um ERT-málið, sem valdið hefur úlfúð í samskiptum flokkanna. Samaras, forsætis­ráðherra, sagði í ræðu um helgina að hann væri ekki að reyna að framkalla kosningar en samstarfs­flokkar hans saka hann um einhliða aðgerðir og hroka og minna hann á að ríki­stjórnin sé saman sett af þremur flokkum.

 

Forsætis­ráðherra Tékklands boðar afsögn vegna spillingarmála

Sun Pets Necas, forsætis­ráðherra Tékklands, mun segja af sér embætti mánudaginn 17. júní vegna mikils þrýstings eftir að saksóknarar ákærðu nánasta aðstoðar­mann hans, Jönu Nagyovu, vegna spillingar og valdníðslu. Innan stjórnar­flokkanna verður reynt að mynda stjórn undir forystu einhvers úr flokki Neca...

 

Sigurður Ingi undrast neikvæða afstöðu Damanaki til makrílsamninga

Sun Pat the Cope Gallhager, ESB-þingmaður frá Írlandi, beitti sér fyrir harðri ályktun gegn Íslendingum vegna makrílveiða vorið 2012. Hann sagði á ESB-þinginu föstudaginn 14. júní að hann undraðist að Maria Damanaki, sjávar­útvegs­stjóri ESB, hefði ekki gripið til refisaðgerða gegn Íslendingum og Færeying...

 

Leyniþjónusta Þýskalands eykur umsvif í netheimum - Þjóðverjar vilja skráningu flugfarþega inn á Schengen-svæðið

Sun Leyniþjónusta Þýskalands, BND, ætlar að verja 100 milljónum evra til að auka eftirlit á Internetinu segir Der Spiegel sunnudaginn 16. júní. Þá vill innanríkis­ráðherra Þýskalands að þeir sem vilji ferðast á Schengen-svæðinu fylli út persónubundið spurningablað. Áform BND eru sögð miða að eftirliti me...

 

Hótunar­bréf fannst í salerni flugvélar - lent í Prestwick, Skotlandi - fimm Sýrlendingar leita eftir hæli

Sun Flugvél Egypt Air á leið frá Kairo til New York var nauðlent laugardaginn 15. júní í Prestwick í Skotlandi eftir að farþegi, starfsmaður BBC, fann hótunarbéf í salerni vélarinnar. Um borð í vélinni voru 326 farþegar. Fimm farþegar, Sýrlendingar, óskuðu eftir hæli sem flóttamenn í Englandi. Breskar ...

 

Grikkland: Pólitísk sjálfhelda um ERT-staða Samaras í hættu?

Sun Samstarfs­flokkar Nýja lýðræðis­flokksins í ríkis­stjórn Grikklands hafa hafnað hugmyndum Antonis Samaras um að sett verði upp þverpólitísk nefnd í næstu viku, sem mundi hefja rekstur nýrrar útvarps- og sjónvarpsstöðvar ríkisins með takmörkuðum starfsmannafjölda.

 

Noregur: Herskylda nær nú líka til kvenna

Sun Norska þingið samþykkti í fyrradag, föstudag, að konur skuli gegna herskyldu ekki síður en karlar og eru fyrsta ríkið í Evrópu og fyrsta aðildarríki Atlantshafsbandalagsins, sem tekur upp herskyldu kvenna að sögn Reuters-fréttastofunnar. Réttindi og skyldur eiga að vera hin sömu fyrir alla, sagði Laila Gustavsen, stuðningsmaður frumvarpsins.

 

Sænska ríkis­stjórnin fellur frá kröfu innan ESB um leyfi til útflutnings á snusi - leggst gegn 75% viðvörun á sígrarettupökkum

Lau Sænska ríkis­stjórnin hefur fallið frá tilraunum innan ESB til að fá leyfi fyrir sænsk fyrirtæki til að flytja snus (munntóbak) til annarra ESB-ríkja. Taldi ríkis­stjórnin að ekki tækist að afla nægilegs skilnings og stuðnings við málið. Ewa Björling, viðskipta­ráðherra Svía, sagði í desember 2012 að barist yrði til þrautar í þágu snus-útflutnings. Svíar hafa nú lýst sig sigraða í málinu.

 

Lög­regla hreinsar Taksim torg og Gezi garð í Istanbúl

Lau Tyrkneskir óeirðalög­reglumenn héldu síðdegis laugardaginn 15. júní inn á Taksim torg og í Gezi garð í Istanbúl til að ryðja þaðan mótmælendum. Nokkru áður hafði Recep Tayyip Erdogan, forsætis­ráðherra Tyrklands, ítrekað úrslitakosti sína. Lög­regla beitti táragasi og háþrýsti-vatnsbyssum til að hrekj...

 

Tékkland:Ríkis­stjórnin riðar til falls vegna áskana um spillingu á æðstu stöðum

Lau Ríkis­stjórn Tékklands riðar til falls vegna hneykslis sem tengist helsta aðstoðar­manni forsætis­ráðherrans, Petrs Necas. Ríkis­stjórnin er minnihluta­stjórn mið-hægrimanna og segja fulltrúar samstarfs­flokka forsætis­ráðherrans að þeir íhugi hvort þeir eigi að starfa áfram með honum.

 

AGS gagnrýnir ríkisfjármála­stefnu Bandaríkjanna

15. jún Alþjóða gjaldeyris­sjóðurinn er mjög gagnrýninn á ríkisfjármála­stefnu Bandaríkjanna í nýrri skýrslu og segir að hún sé illa undirbúin og framkvæmd með of miklum hraði. Afleiðingin verði 1,75% minni hagvöxtur en ella. AGS spáir því nú að hagvöxtur í Bandaríkjunum í ár verði 1,9% og 2,7% á næsta ári en ekki 3% eins og spáð hafði verið í apríl.

 

El País: Bárcenas átti meiri peninga í svissneskum bönkum en hann hefur viðurkennt

15. jún Spænska dagblaðið El País segir að Lúis Bárcenas, fyrrum gjaldkeri Lýð­flokksins (PP), stjórnar­flokksins á Spáni hafi ekki bara komið fyrir 38 milljónum evra á reikningum í svissneskum bönkum heldur 47 milljónum evra eða 9 milljónum evra hærri upphæð en hann hefur viðurkennt.

 

Samaras: ERT yfirfullt af hneykslismálum sem upplýst verða fljótlega

15. jún Heimildarmenn gríska dagblaðsins Kathimerini segja, að Antonis Samaras, forsætis­ráðherra Grikklands, sé ákveðinn í því að gríska ríkisútvarpið-sjónvarp, (ERT) verði ekki opnað á ný en sé tilbúinn til að ræða við samstarfs­flokka sína á mánudag, að löggjöf um nýja ríkisstöð verði hraðað, svo að nýtt fyrirtæki geti hafið einhverja starfsemi í næstu viku.

 

Viðskipta­ráðherrar ESB sammála um samningsumboð gagnvart BNA - Frakkar höfðu sitt fram í bili

14. jún Viðskipta­ráðherrar ESB-ríkjanna komust föstudaginn 14. júní að sameiginlegri niðurstöðu um samningsmarkmið í fyrirhugðum frí­verslunarviðræðum við Bandaríkjamenn. Komið var til móts við óskir Frakka um að tryggð yrði vernd fyrir menningarstarfsemi. Embættismenn ESB sögðu að ráðherrarnir hefðu samþyk...

 

Erdogan hvetur mótmælendur til að hörfa - dómarar ráði niðurstöðu

14. jún Recep Tayyip Erdogan, forsætis­ráðherra Tyrklands, hefur mælst til þess við litla sendi­nefnd mómælenda að þeir hvetji hundruð annarra mótmælenda í Gezi-garði til að yfirgefa garðinn.

 

Uppnám í stjórnmálum Tékkóslóvakíu vegna hneyksla og spillingar á æðstu stöðum

14. jún Uppnám ríkir í tékkneskum stjórnmálum vegna hneykslismála. Fimmtudaginn gerði lög­regla húsleit í stjórnar­byggingum meðal annars hjá skrifsofu­stjóra forsætis­ráðherrans sem götublöð gefa til kynna að sé ástkona hans. Sagt er að hún hafi látið njósna um fyrrverandi eiginkonu ráðherrans. Ekki lá ljóst fyrir í upphafi hver var til rannsóknar eða fyrir hvað.

 

Fríverslunar­viðræður ESB og BNA: Reynt að fá Frakka til að falla frá menningarfyrirvara

14. jún Viðskipta­ráðherrar ESB-ríkjanna koma saman til fundar í Lúxemborg föstudaginn 14. júní til að samræma afstöðu sína til frí­verslunarviðræðna við Bandaríkjamenn og fá Frakka til að falla frá fyrirvara sínum um að ekki verði rætt um kvikmyndir og tónlist og frelsi í viðskiptum á þessum sviðum í viðræðu...

 

British Medical Journal: Aðhaldsaðgerðir og niðurskurður hafa neikvæð áhrif á heilsufar Spánverja

14. jún Aðhaldsaðgerðir og niðurskurður í spænska heilbrigðiskerfinu hefur veruleg neikvæð áhrif á heilsufar Spánverja segir í nýrri skýrslu, sem birt var í gær í British Medical Journal og El País, spænska dagblaðið segir frá. Höfundar skýrslunnar segja að verði ekki breyting á sé mikil hætta á ferðum og að aukning verði á smitsjúkdómum.

 

Grikkland: Stjórnar­samstarfið hangir á bláþræði vegna ERT-málsins

14. jún Antonis Samaras, forsætis­ráðherra Grikklands hefur fallizt á að ræða stöðu gríska ríkisútvarpsins-sjónvarps við samstarfsaðila sína í ríkis­stjórn að því er fram kemur á ekathimerini og fer sá fundur fram á mánudaginn kemur.

 

WSJ: Ávöxtunarkrafa á ríkisskulda­bréf sumra evruríkja fer hækkandi á ný

14. jún Wall Street Journal segir í dag að straumhvörf kunni að vera í aðsigi á skulda­bréfamörkuðum ef svo fari sem horfi að seðlabankar dragi úr eða hætti takmarkalausri innspýtingu fjár á alþjóðlega fjármála­markaði. Vísbendingar um þetta má sjá á hækkandi ávöxtunarkröfu á 10 ára grísk ríkisskulda­bréf.

 

Þýski varnarmála­ráðherrann stendur af sér vantraust vegna dróna

13. jún Þýska þingið felldi fimmtudaginn 13. júni tillögu Vinstri­flokksins um vantraust á Thomas de Maiziére, varnarmála­ráðherra Þýsklands, með 307 atkvæðum gegn tillögunni og 233 atkvæðum með henni. Rannsókn þingsins á hlut ráðherrans í drón-málinu svo­nefnda er þó ekki lokið. Þingmenn stjórnar­flokkanna, ...

 

Stefan Füle vill rækta sérstakt samband Íslands og ESB á grundvelli aðlögunarviðræðnanna og EES-samstarfsins - vinsamlegar viðræður við Gunnar Braga Sveinsson

13. jún Ṥtefan Füle, stækkunar­stjóri ESB, gaf til kynna á blaðamannafundi í Brussel með Gunnari Braga Sveinssyni utanríkis­ráðherra síðdegis fimmtudaginn 13. júní að finna mætti leið til öflugra og nánara samstarfs við Íslendinga á grundvelli þess sem áunnist hefði í ESB-viðræðunum og EES-aðild Íslands...

 

Tyrkland: Forsætis­ráðherrann gefur mótmælendum „lokaviðvörun“ - gefur ekkert fyrir ályktun ESB-þingsins

13. jún Recep Tayyip Erdogan, forsætis­ráðherra Tyrklands, hefur gefið mótmælendum í Gezi-garði í Istanbúl „lokaviðvörun“. „Þolinmæði okkar er á enda. Ég vara ykkur við í síðasta sinn,“ sagði hann miðvikudaginn 12. júní á fundi með flokksmönnum sínum í Ankara, þeir hylltu hann með lófataki og risu á fætur ti...

 
 
Í pottinum

Rétt ákvörðun menntamála­ráðherra í málefnum RÚV

Það er rétt hjá Illuga Gunnarssyni, menntamála­ráðherra, að þingkjörin stjórn Ríkisútvarpsins er lýðræðislegri aðferð við að stjórna þeirri stofnun en val­nefndarfyrirkomulagið, sem var í aðsigi. Þótt val­nefndarskipan geti litið vel út á pappírnum býður það kerfi upp á að klíkuskapur í þeim samtökum, sem þar koma að málum ráði ferðinni.

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

Mest lesið
 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS