Fimmtudagurinn 23. maí 2013

Fara Grikkir tímabundið út af evru­svæðinu?

Miðjarðarhafsveira gjaldþrota og tapaðra skulda breiðist út


27. apríl 2010 klukkan 22:29

Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn íhugar nú að auka fjárhagslega aðstoð sína við Grikkland. Í kjölfar þess að að lánshæfismat Grikkja var fellt í ruslflokk í gær breiddust út um evrusvæðið vaxandi áhyggjur af því, að það sem nú er kallað Miðjarðarhafsveira gjaldþrota og tapaðra skulda breiðist út og nái til Portúgals, Spánar og Ítalíu.

Hlutabréf féllu í verði beggja vegna Atlantshafs vegna þessara frétt. Í Aþenu lækkaði verð hlutabréfa um 6%. Í Lissabon um 5%. Þetta veldur Seðlabanka Evrópu vaxandi áhyggjum.

Hingað til hefur verið talað um að heildarstuðningur við Grikkja þurfi að vera 45 milljarðar evra frá ESB og AGS en nú er talað um að þessi upphæð þurfi að verða 70 milljarðar evra og að AGS muni bæta 10 milljörðum evra við þær 15 milljónir evra, sem áður var talað um að kæmu frá sjóðnum.

Talsmenn Frjálsra demókrata í Þýzkalandi hafa hreyft þeirri hugmynd að Grikkland víki tímabundið af evrusvæðinu og reyni að ná sér á strik með eigin gjaldmiðli.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Víglund Þorsteinsson Pistill

Evruland er nýlenda Þýskalands

Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Framkvæmda­stjórn ESB rann á rassinn í stóra ólívuolíumálinu

Framkvæmda­stjórn ESB hefur ákveðið að falla frá tillögu um að banna opna dreifingu á olívuolíu á borðum veitingastaða eftir harða gagnrýni á áform um að hrinda henni í framkvæmd 1. janúar 2014 með kröfu um að framvegis yrði olían aðeins borin fram í flöskum með föstum töppum. Dacian Ciolos, landbún...

Noregur: Enginn sótti um embætti hæstaréttardómara

Auglýst var eftir umsóknum um embætti hæstaréttardómara í Noregi og rann umsóknarfrestur út 10. maí sl. Enginn sótti um embættið sem ætlunin var að veita frá 1. janúar 2014. Þetta vekur nokkra undrun þar sem bæði er um virðulegt og vel launað starf að ræða, árslaunin eru um 1,5 m. norskar krónur eða...

Osló: Norsk stjórnvöld töldu aðild Íslands að ESB aldrei líklega - vænta aukins samstarfs til að styrkja stöðuna innan EES

Norskir stjórnmálamenn áttu aldrei von á að ESB-aðildar­viðræðurnar yrðu leiddar til lykta undir forystu ríkis­stjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og kippa sér því ekki upp við fréttir frá Íslandi um að ný ríkis­stjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar hafi kynnt hlé á ESB-viðræðunum.

David Cameron: Það hefur verið gerð hryðjuverkaárás á breskt þjóðlíf

David Cameron, forsætis­ráðherra Bretlands, segir að ráðist hafi verið að Bretum og bresku þjóðlífi miðvikudaginn 22. maí þegar tveir menn grunaðir um að vera öfgafullir islamistar drápu breskan hermann með köldu blóði um miðjan dag fyrir framan herbúðir í London. Ráðherrann sagði fimmtudaginn 23. ma...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS