Joschka Fischer, fyrrverandi utanríkisráðherra Þýzkalands, segir að gríska kreppan geti breytzt í evrópskan sorgarleik. Sérfræðingur hjá alþjóðlegu ráðgjafarfyrirtæki, Elliott Wave International, segir að vandamál Grikklands, Ítalíu, Spánar, Portúgals og Írlands og nú megi jafnvel bæta Belgíu við, geti leitt til þess, að Evrópusambandið sundrist og að það geti leitt til borgarastyrjaldar á meginlandi Evrópu.
Í fjölmiðlum er byrjað að spyrja hvað hafi orðið um hina pólitísku leiðtoga Evrópu. Því er haldið fram að þeir hafi hlaupið í felur og láti Alþjóða gjaldeyrissjóðinn um að axla vandann. Þessi spurning var m.a. rædd í New York Times í morgun.
Þá er rætt um að fjórir þekktir prófessorar í Þýzkaland hyggist kæra björgunaraðgerðir ESB við Grikki til stjórnlagadómstólsins í Þýzkalandi á þeirri forsendu að um brot á sáttmála Evrópu og evruríkja sé að ræða.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Merkel á löngum einkafundi með Frans páfa
Angela Merkel Þýskalandskanslari ræddi í 45 mínútur við Frans páfa á einkafundi laugardaginn 18. maí,. Fréttastofan Deutsche Welle segir að óvenjulegt sé að einkafundir með páfa séu svo langir. Merkel er leiðtogi kristilegra demókrata í Þýskalandi þar sem kaþólskir kjósendur skipta miklu. Merkel er ...
Ítalir efna til fjöldamótmæla í Róm - Merkel líkt við nasistaforingja
Um 100.000 manns mótmæltu í Róm laugardaginn 18. maí. Forystumenn verkalýðssamtaka stjórnuðu aðgerðunum undir rauðum fánum og markmið þeirra var að knýja fram stefnubreytingu hjá nýrri ríkisstjórn landsins undir forsæti Enricos Letta sem kemur úr röðum vinstri manna. Þá einkenndust mótmælin einnig a...
ESB setur reglur um ólívuolíu á borðum veitingastaða - aðeins í verksmiðjumerktum flöskum
Víða á veitingastöðum á meginlandi Evrópu, í Bretlandi og hér á landi er borin var ólívuolía í litlum flöskum eða henni er hellt á skálar, hún er græn eða jafnvel gyllt á litinn og erlendis tíðkast víða að eigendur veitingastaða semji við ólívubændur beint um kaup á framleiðslu þeirra.
Alaska Dispatch: Eiga Grænland og Færeyjar að fá sjálfstæða aðild að Norðurskautsráðinu?
Mia Bennett, sem fjallar um málefni Norðurslóða m.a. á vefmiðlinum Alaska Dispatch segir að nú beinist athyglin í málefnum Norðurskautsráðsins að því, hvort Grænland og Færeyjar eigi að fá sjálfstæða aðild að ráðinu með sama rétt og aðrir meðlimir þess eða endurheimta stóla við borðið á fundum þess....