Fimmtudagurinn 20. júní 2013

Evru-efasemdir aukast í Frakklandi


30. apríl 2010 klukkan 19:07

Eric Chan
Seðlabanki Evrópu í Frankfurt

„Evru-efasemdir“ eru að aukast í Frakklandi að sögn franska blaðsins Le Monde. Forystumenn stjórnar og stjórnarandstöðu leggja höfuðkapp á að forðast að gríska krísan hafi of víðtæk áhrif. Innan allra flokka óttist menn, að krísan ýti undir efasemdir í garð Evrópusambandsins.

Pierre Lellouche, Evrópumálaráðherra Frakka, flutti í vikunni ræðu á fundi þingmanna úr hægri flokkum 27 aðildarríkja ESB og sagði, að krísan og vanmáttur evrópskra stofnana til að takast á við hana vekti vantrú meðal almennings á ESB og þess yrði vart, að áhugi á samvinnu við aðrar þjóðir minnkaði og hver og einn yrði að gæta að eigin hag. Þetta væri vor hættulegra atburða.

Franska ríkisstjórnin er í nokkrum vanda að mati Le Monde. Hún hefur heitið því að taka þátt í „björgunarleiðangri“ vegna Grikklands, án þess að leggja þeim evrópsku stofnunum lið, sem sumir á hægri og vinstri væng stjórnmálanna saka um að hafa stuðlað að núverandi krísu.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Ástralía: Fékk höfuðhögg tók að tala ensku með frönskum hreim

Áströlsk kona tók að tala ensku með frönskum hreim eftir að hún vaknaði eftir umferðarslys þar sem hún hlaut höfuðhögg. Um er að ræða sjaldgæft heilkenni sem um 60 manns hafa greinst með á 100 árum segir í blaðinu Le Figaro. Leanne Rowe hefur aldrei farið til Frakklands og á enga franska vini.

Grikkland: Leiðtogar stjórnar­flokka funda síðdegis um ERT

Leiðtogar stjórnar­flokkanna þriggja á Grikklandi koma saman til fundar síðdegis í dag til þess að reyna að ná samkomulagi um örlög og framtíð gríska ríkisútvarpsins-sjónvarps. Samkvæmt úrskurði stjórnlagadómstóls Grikklands sl. mánudag hafði ríkis­stjórnin leyfi til að loka ERT en ekki að slökkva á útsendingu. Stjórnar­flokkarnir hver um sig túlka þessa niðurstöðu eins og þeim hentar.

NSA og FBI hafa hindrað rúmlega 50 tilraunir til hryðjuverka síðan 11. september 2001

Þjóðaröryggis­stofnun Bandaríkjanna (NSA) og Alríkislög­regla Bandaríkjanna (FBI) hafa að eigin sögn komið í veg fyrir að minnsta kosti 50 tilraunir til hryðjuverka frá 11. september 2011. Google-fyrirtækið hefur óskað eftir að fá að birta hvernig þátttöku þess í verkefnum gegn hryðjuverkum hefur veri...

Forseti Kýpur fer fram á allsherjar endurskoðun björgunaraðgerða

Nikos Anastasiades, forseti Kýpur hefur skrifað leiðtogum evru­svæðisins bréf og farið fram á allsherjar endurskoðun á þeim skilmálum, sem Kýpur tók á sig vegna björgunarláns að upphæð 10 milljarðar evra. Í bréfinu segir forsetinn að Kýpur geti ekki uppfyllt þessa skilmála vegna þess að aðgerðirnar hafi skaðað efnahag landsins og bankakerfið meira en búizt var við.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS