Laugardagurinn 23. janúar 2021

Pútín áréttar mikilvægi Norður-Íshafs fyrir Rússa


3. maí 2010 klukkan 11:23

Við höfum margra hagsmuna að gæta á heimskautasvæðinu, sagði Vladimir Pútín, forsætisráðherra Rússlands, þegar hann heimsótti Franz Josef eyjaklasann nýlega. Við eigum flotastöðvar við Norður-Íshaf, viljum nýta auðlindir í hafinu og þar eru mikilvægar siglingaleiðir, sagði hann í sjónvarpsviðtali.

Franz Josef eyjaklasinn er í Norður-Íshafi fyrir norðan Novaya Zemleya og austan Svalbarða. Klasinn er myndaður af 191 ísþakinni eyju, sem ná yfir 16 þúsund ferkílómetra svæði. Þar er ekki neina innfædda íbúa að finna en Rússar hafa sest þar að í byggðakjörnum, þaðan sem stundaðar eru rostungs- og selveiðar.

Á vefsíðunni BarentsObserver er bent á, að Pútín hafi heimsótt eyjaklasann 16. apríl, þegar hann var á ferð um Múrmansk, þótt ekki hafi verið sagt frá för hans þangað, fyrr en að lokinni heimsókn Dmitris Medvedevs, Rússlandsforseta, til Óslóar undir lok apríl.

Franz-Josef-Land

Vangaveltur eru meðal sérfræðinga um, hvort tengsl séu á milli ferðar Pútíns til Franz Josefs eyjanna og heimsóknar Medvedevs til Óslóar. Forsætisráðuneytið kynni að hafa þagað um ferð Pútíns af ásettu ráði til að trufla ekki viðræðurnar við Norðmenn. Förin kunni einnig að komast í fréttir nú til að árétta ítök og áhuga Rússa á Norður-Íshafi, eftir að samið var við Norðmenn.

Í för sinni hélt Pútín að nyrstu landamærastöð Rússlands á Carl Alexander eyju. Hann lagði áherslu á nauðsyn þess að sýna umhverfinu fyllstu gát og hvatti til þess, að iðnaðarúrgangur frá Sovéttímanum yrði hreinsaður. Pútín tók einnig þátt í því að merkja ísbjörn í vísindaskyni.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS