Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur ekki sagt álit sitt á því, hvort niðurstaða meirihluta iðnaðarnefndar alþingis undir formennsku Skúla Helgasonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um fjárfestingarsamning iðnaðarráðherra við Verne Holdings ehf., Verne Real Estate ehf. og eigendur þeirra um, að þau reisi og reka gagnaver í Reykjanesbæ, standist samkeppnisreglur EES-samningsins.
Í áliti meirihlutans segir, að frumvarpið til laga um staðfestingu á drögum að fjárfestingarsamningi ásamt öðrum samningum, sem tengjast verkefninu, hafi verið tilkynnt til ESA á þeim grundvelli, að um réttlætanlega byggðaaðstoð væri að ræða. ESA hafi áður samþykkt svokallað byggðakort fyrir Ísland og hafi íslensk stjórnvöld heimild til að veita byggðaaðstoð í landsbyggðarkjördæmunum þremur, það er norðvestur-, norðaustur- og suðurkjördæmum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Samkvæmt byggðakortinu geti byggðaaðstoð numið allt að 15% af heildarfjárfestingarkostnaði. Hlutfallið sé þó lægra sé um stærri verkefni að ræða og í því tilviki sem hér um ræðir gæti það hæst orðið 6,34%.
Ríkisaðstoðin við Verne-félögin, hefur verið áætluð 5,4 milljónir Bandaríkjadala, miðað við 20 ára samning, en heildarfjárfestingarkostnaður er áætlaður 726 milljónir Bandaríkjadala miðað við gagnaverið fullbúið árið 2016. Ríkisaðstoðin er því að mati meirihluta iðnaðarnefndar 0,74% af heildarfjárfestingarkostnaði sé miðað við samning til 20 ára.
Til að koma til móts við kröfur framkvæmdastjórnar ESB og reglur ESA leggur meirihluti iðnaðarnefndar til, að samið verði um ríkisaðstoð vegna gagnaversins til 10 ára. Fer þá áætluð heildarfjárhæð veittrar ríkisaðstoðar á gildistíma samningsins niður í 3,4 milljónir Bandaríkjadala og ríkisaðstoðarhlutfallið niður í 0,47%.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.