Föstudagurinn 26. febrúar 2021

Schäuble óttast efasemdarmenn um ESB


7. maí 2010 klukkan 11:40

Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, lýsti áhyggjum sínum yfir því i WDR Europa Forum, að almenningur væri ekki mjög hlynntur „evrópska verkefninu“. Þar vísaði hann til þess átaks, sem nú væri gert í þágu evrunar með stuðningi við Grikki.

Wolfgang Schäuble

Hann sagði einnig, að skapaði ESB ekki stöðugleika í þágu evrunnar, myndi stjórnmálamönnum gjörsamlega mistakast að endurheimta traust almennings. Hann sagði orðrétt:

„Almenningur er ekki mjög hlynntur evrópska verkefninu. Við verðum að sannfæra fólk um að sameining Evrópu þjóni hagsmunum Evrópu. Ég hef mjög miklar áhyggjur af Evrópu-efasemdarmönnum.“

Schäuble hefur verið talsmaður þess, að þau ESB-ríki, sem vilji meiri samruna en nú er, stofni til hans. Hann bendir á, að innan vébanda ESB sé samstarf ríkja háttað á mismunandi vegu, sum þeirra séu á evru-svæðinu, önnur ekki, sum í Schengen-samstarfinu, önnur ekki. Þannig sé skynsamlegt að þróa samstarfið í stað þess að láta þá, sem hægast vilja fara, ráða ferðinni fyrir alla.

Talið er, að ríkisstjórn í Bretland undir forystu íhaldsmanna, vilji sanna sig heima fyrir með því að skapa sér sérstöðu innan ESB, enda er það í samræmi við stefnu Íhaldsflokksins. Hann dró sig til dæmis út úr þingflokki hægri-miðjumanna á ESB-þinginu, European People's Party, þar sem kristilegri demókratar, flokkur Schäubles, eru ráðandi.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS