Mánudagurinn 25. janúar 2021

Biden reynir að sannfæra ESB-þingmenn

ESB-þingið leggst gegn miðlun persónuupplýsinga til Bandaríkjanna


7. maí 2010 klukkan 12:03

Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, hvatti ESB-þingmenn til að samþykkja aðgang bandarískra yfirvalda að SWIFT-greiðslum milli banka, þegar hann flutti tæplega klukkutíma ræðu yfir þeim í Brussel, fimmtudaginn 6. maí.

Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, og Jerzy Buzek, forseti ESB-þingsins.

Biden er hæstsetti Bandaríkjamaðurinn, sem talað hefur á ESB-þinginu síðan Ronald Reagan, forseti, kom þangað árið 1985. Hann taldi miðlun þessara upplýsinga skipta höfuðmáli í baráttunni gegn hryðjuverkum. Hætta á þeim væri enn mikil, eins og sannast hefði á Times Square í New York nýlega.

ESB-þingmenn hafa lagt þunga áherslu á persónuvernd og verið tregir til að samþykkja tillögur Bandaríkjastjórnar um miðlun upplýsinga um flugfarþega á leið til Bandaríkjanna eða um peningagreiðslur til Bandaríkjanna. Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna heldur úti sérstakri stofnun til að fylgjast með greiðslum í því skyni að sporna gegn hryðjuverkum.

ESB-þingið hafnaði bráðabirgðasamkomulagi um miðlun bankaupplýsinga við Bandaríkin í febrúar sl. Kom ákvörðun þingsins Bandaríkjastjórn í opna skjöldu, en hún hafði stofnað til mikillar herferðar til að sannfæra þingmennina um mikilvægi samkomulagsins.

Miðvikudaginn 5. maí ákvað þingið einnig að fresta atkvæðagreiðslu um nýjan samning ESB og Bandaríkjanna um miðlun nafna á farþegaskrám, það er á persónulegum upplýsingum um þá, sem fljúga til Bandaríkjanna.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS