Sunnudagurinn 28. febrúar 2021

Rússar nota fjármálakreppuna til að styrkja stöðu sína í Evrópu

Vilja kaupa upp eignir orku- og fjármálafyrirtækja í Eystrasaltsríkjum og öðrum ESB-löndum


16. maí 2010 klukkan 09:20

Stjórnvöld í Moskvu velta því fyrir sér, hvernig Rússar geti styrkt stöðu sína, pólitískt og efnahagslega gagnvart ESB-ríkjum og notað það tækifæri, sem fjármálakreppan í evruríkjunum skapi. Þetta kemur fram í skjali, sem talið er að hafi verið lekið af ásettu ráði í rússneska útgáfu bandaríska vikuritsins Newsweek. Talið er að höfundur skjalsins sé Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands.

Sergei Lavrov

Í skjalinu er lagt til að Rússar noti tækifærið og reyni að komast yfir eignir iðnfyrirtækja og orkufyrirtækja í Eystrasaltsríkjunum, sem eru aðilar að ESB en einnig í Hvíta-Rússlandi, Úkraínu og í Mið-Asíuríkjunum. Þar er ennfremur hvatt til þess, að Rússar noti tækifærið, sem nú hafi skapast til þess að komast yfir banka og fjármálafyrirtæki í Evrópu.

Þar er ennfremur lögð áherzla á góð samskipti við Evrópusambandið en jafnframt að styrkja eigi stöðu Rússlands í samskipti við ríkin í austurhluta Evrópu. Í skjalinu kemur fram, að Rússar líti á Þýzkaland, Frakkland, Ítalíu og Spán sem ríki, sem séu vinveitt Rússum.

Af hálfu Evrópusambandsins er lögð áherzla á, að ekki sé um að ræða samkeppni á milli þess og Rússlands í austurhluta Evrópu. Hins vegar leggur ESB áherzlu á náin samskipti við Armeníu, Azerbaijan, Hvíta-Rússland, Georgíu, Moldovu og Úkraínu með nánara samstarf í efnahagsmálum í huga og frelsi í ferðum á milli ríkjanna án vegabréfsáritunar. Evrópusambandið hefur ákveðið að verja 350 milljónum evra í þessu skyni fram til ársins 2013. Í tilviki Úkraínu og Moldovu er hugsunin sú, að ýta undir aðild að ESB í framtíðinni.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS