Aðgerðirnar voru til að bjarga þýzkum og frönskum bönkum, ekki Grikkjum, segir Ferguson
Evran hélt áfram að veikjast á mörkuðum í Asíu sl. nótt og í Evrópu í morgun. Á tímabili í morgun varð hún lægri gagnvart dollar en hún hefur nokkru sinni verið síðustu fjögur ár.
Kostnaður við skammtímalán er að hækka. Í New York Times í morgun er því haldið fram, að það geti leitt til þess að fjármálafyrirtæki dragi úr lánveitingum og krefjist uppgreiðslu á eldri lánum en hvoru tveggja muni draga úr hagvexti.
Þá eru vaxandi áhyggjur af því, að bankar í Frakklandi og Þýzkalandi hafi keypt mikið af skuldabréfum frá Spáni, Portúgal og Grikklandi. Hinn kunni háskólakennari við Harvard, Niall Ferguson (höfundur bókarinnar Peningarnir sigra heiminn sem komið hefur út hjá Uglu) segir að björgunaraðgerðir ESB hafi ekki verið til þess að bjarga Grikklandi heldur frönskum og þýzkum bönkum. Talið er hugsanlegt, að afskrifa þurfi töluvert af þessum skuldabréfum.
Þó er að mati blaðsins ekki allt neikvætt í þessari þróun. Framleiðsluvörur evruríkjanna verði samkeppnishæfari á alþjóðlegum mörkuðum.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.