Evrópusambandið á í viðræðum um aðild við nokkur ríki auk Íslands. Stefán Fule, stækkunarstjóri ESB gerði grein fyrir stöðu þeirra viðræðna á fundi með utanríkismálanefnd Evrópuþingsins í Strassborg sl. mánudag. Þar kom fram, að nú er unnið að mati á aðildarumsóknum Montenegró og Albaníu. Viðræður við Tyrkland eru komnar á það stig að opnun einstakra kafla í löggjöf ESB er á dagskrá.
Löggjöfin skiptist í 35 kafla og er samið um hvern kafla fyrir sig við umsóknarríki. Til þess að hefja viðræður um hvern kafla þarf samþykki allra aðildarríkja og sömuleiðis til þess að ljúka hverjum kafla.
Stækkunarstjórinn sagði að athyglin beindist nú að fjórum köflum, um fæðuöryggi, um opinber framlög, um samkeppni og um velferðar- og atvinnumál. Markmiðið væri að opna viðræður um kaflann um fæðuöryggi á meðan Spánverjar eru í forsæti ESB. Hins vegar væru tímamörk þröng, ekki sízt vegna þess, að Tyrkir eiga eftir að taka upp ákveðna ESB-löggjöf, sem væri skilyrði fyrir framhaldi viðræðna. Boltinn væri því hjá Tyrkjum.
Stefán Fule sagði, að framkvæmdastjórnin hefði hvatt til aðildarviðræðna við Macedóníu, sem mundi koma til umræðu á fundi ráðherraráðsins í júní. Þá væri í undirbúningi að leggja mat á aðildarumsókn Serbíu. Og Bosnía og Hersegovina tækju mikinn tíma sinn um þessar mundir. Loks nefndi hann mikilvægi þess að Kosovo drægist ekki aftur úr öðrum ríkjum á Balkanskaga að þessu leyti.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.