Kallað eftir viðbrögðum hagsmunaaðila
Mánudaginn 17. maí birti framkvæmdastjórn ESB skýrslu , sem á að verða grundvöllur umræðna um fiskveiðar í lögsögu Evrópusambandsins á árinu 2011. Í skýrslunni er upplýst hvernig framkvæmdastjórnin ætli að bregðast við vísindalegri ráðgjöf um aflatakmarkanir og fiskveiðikvóta á næsta ári. Markmið Maríu Damanaki, sem sér um sjávarútvegsmál í framkvæmdastjórn ESB er að beita strangari aðgerðum til þess að mæta alþjóðlegum kröfum.
Framkvæmdastjórnin birtir slíka skýrslu ár hvert til þess að útskýra fyrir sjómönnum og sjávarútvegsfyrirtækjum hvaða reglum verði beitt til þess að ákveða kvótann. Skýrslan er síðan send til hagsmunaaðila til skoðunar og ráðgjafar. Ákvörðun er tekin að höfðu þessu samráði.
Veiðitakmarkanir í Eystrasalti, Svarta hafi og í Norðursjó eru settar árlega. Takmarkanir á veiði djúpsjávartegunda eru settar á tveggja ára fresti. Fiskveiðar í Miðjarðarhafi byggjast ekki á slíkum takmörkunum nema að mjög takmörkuðu leyti.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.