Miðvikudagurinn 20. janúar 2021

Cameron: Evru-ríkin bjargi sér sjálf


22. maí 2010 klukkan 12:00

David Cameron, forsætisráðherra Breta, áréttaði á fundi með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, föstudaginn 21. maí, að Bretar litu ekki á það sem hlutverk sitt að koma evru-ríkjunum til hjálpar með beinum fjárframlögum. Þau yrðu að bjarga mynt sinni sjálf, Bretar hefðu ekki áhuga á að taka upp evru.

Þau Cameron og Merkel hittust í Berlín í fyrstu ferð nýja breska forsætisráðherrans til Frakklands og Þýskalands, eftir að hann myndaði stjórn sína.

David Cameron og Angela Merkel

Cameron sagðist vilja vinna með Þjóðverjum að því að stuðla að efnahagslegum stöðugleika, hagvexti og úrræðum til að minnka ríkissjóðshalla hjá Evrópuríkjum. Að ná þessum markmiðum væri allra hagur. Hann væri hins vegar ekki þeirrar skoðunar, að flytja ætti meira vald til Brussel frá breska þinginu.

Þjóðverjar hafa hreyft hugmyndum um breytingar á stjórnarskrá ESB, Lissabon-sáttmálanum, til færa ESB-framkvæmdastjórninni fjárstjórnareftirlit með einstökum ríkjum auk refsiúrræða gegn þeim, sem brytu gegn umsömdum skilyrðum við meðferð ríkisfjármála. Yrði hróflað við ESB-stjórnarskránni, stæði Cameron frammi fyrir ákvörðun um að leggja breytinguna undir þjóðaratkvæði í Bretlandi.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS