Samræma þarf eftirlaunaaldur segir Joschka Fischer
ESB-ríkin standa nú frammi fyrir kröfu um breytingar á útgjöldum til velferðarmála vegna niðurskurðar, sem nær til flestra aðildarríkjanna. Framlög til velferðarmála hafa hækkað í ESB-ríkjunum úr 16% af vergri landsframleiðslu 1980 í 21% árið 2005 að sögn New York Times. Í Bandaríkjunum nema þessi framlög 15,9% .
Í Frakklandi nema þau hins vegar 31%. Þar af ganga um 44% til eftirlaunagreiðslna og 30% til heilbrigðiskerfisins. Eftirlaunaaldur í Frakklandi er 60 ár en Þjóðverjar hafa hækkað eftirlaunaaldur hjá sér í 67 ár hjá þeim, sem eru fæddir 1963 og síðar.
Frakkar hafa lofað breytingum til batnaðar en skoðanakannanir sýna að 60% Frakka telja ekki að svarið við vanda velferðarkerfisins í Frakklandi sé að fólk vinni eftir sextugt. Joschka Fischer, fyrrverandi utanríkisráðherra Þýzkalands segir að samræma verði eftirlaunaaldur innan ESB. Það gangi ekki að hann sé 67 ár í Þýzkalandi en 55 ár í Grikklandi.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.