Barónessa Catherine Ashton, utanríkisráðherra Evrópusambandsins, heimsótti höfuðstöðvar NATO í Brussel þriðjudaginn 25. maí. Sat hún sameiginlegan fund fastaráðs NATO og stjórn- og öryggismálanefndar ESB auk þess sem hún átti einkafund með Anders Fogh Rasmussen, framkvæmastjóra NATO.
Anders Fogh Rasmussen sagði að þau Ashton væru sammála um, að meiri samgangur og samræður þyrftu að vera á milli NATO og ESB. Það ætti auka samstarfið í Afghanistan, Kosovo, Bosníu og Herzegovínu og undan ströndum Sómalíu.
Í frétt NATO af fundinum segir, að einkum hafi verið rætt um Bosníu og Herzegóvínu, þar sem ESB er í forystu fyrir aðgerð, sem gengur undir enska heitinu Operation Althea. Nýtur hún stuðnings frá NATO bæði mannafla og tækja. Á svæðinu ríkir mikil spenna á milli þjóðarbrota.
Í fréttum af fundinum er einnig sagt frá því, að Rasmussen hafi hvatt Ashton til að stofna til samstarfs í öryggismálum við Tyrki í nafni ESB. Þá yrði að búa þannig um hnúta, að fulltrúar Kýpur ættu aðgang að sameiginlegum fundum NATO og ESB, en Tyrkir, sem eru í NATO neita þátttöku í slíkum fundum, ef fulltrúi ESB-ríkisins Kýpur situr þá.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.