Evrópumenn óttast, að Katla taki brátt að gjósa og kunni að valda enn frekari truflun á flugsamgöngum hjá þeim. Þetta kemur fram á vefsíðu franska blaðið Le Monde fimmtudaginn 27. maí og er þar vitnað í skýrslu frá nýrri stofnun við University College í London, Institute for Risk & Disaster Reduction, Stofnun til að draga úr áhættu og hörmungum, sem hóf formlega starfsemi miðvikudaginn 26. maí.
Í skýrslunni, sem birt er í dag, fimmtudag, segir að „miklar líkur“ séu á „eldgosi innan skamms“ í Kötlu. Í skýrslunni segir einnig, að eldgos á Íslandi, mikil eða lítil, muni, ef vindátt sé þannig, halda áfram að trufla flug.
Le Monde vitnar síðan í aðra breska skýrslu frá eðlisfræðistofnun í London, þar sem fram komi, að ský með eldfjallaösku, sem hafi svifið yfir Skotlandi fyrir skömmu, hefðu getað valdið tjóni á flugvélum. Rafmagnaðar agnir í skýjunum hefðu getað truflað fjarskipti og ef þær hefðu komist inn í vélina valdið henni og farþegum hennar skaða.
Le Monde minnir á, að vegna gossins í Eyjafjallajökli hafi orðið að aflýsa meira en 100.000 flugferðum í Evrópu og hafi það bitnað á meira en átta milljón farþegum.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.