Föstudagurinn 15. janúar 2021

Þýski seðlabankinn gagnrýnir hinn evrópska vegna Grikklands


30. maí 2010 klukkan 10:46
Merki Seðlabanka Evrópu

Þýski seðlabankinn sakar Seðlabanka Evrópu um að hafa keypt of mikið af grískum skuldum undir áhrifum frá Frökkum. Frá þessu er sagt í franska blaðinu Le Figaro sunnudaginn 30. maí með þeim orðum, að spennan milli Frakka og Þjóðverja vegna fjármálarkrísunnar á evru-svæðinu minnki ekki. Engu hafi breytt í þessu efni, að Nicolas Sarkozy, Frakklandsforseti, hafi lýst yfir því fyrir viku, að hann ætti ekki í deilum við Þjóðverja vegna aðgerða til að styrkja evruna.

Nú eru tvær vikur liðnar frá því, að Seðlabanki Evrópu kynnti áform sín um að kaupa skuldir, bæði einkaaðila og opinberra aðila, en einkum í Grikklandi. Var tilkynningin liður í björgunaraðgerðum í þágu evrunnar, þar sem 750 milljarða evru björgunarsjóður er þungamiðjan. Þýski seðlabankinn var alls ekki sáttur við þessi áform Seðlabanka Evrópu, Telja Þjóðverjar, að hér sé um „franskt samsæri“ að ræða gegn þýskum hagsmunum.

Í næsta hefði af Der Spiegel, sem kemur út mánudaginn 31. maí kemur fram að Seðlabanki Evrópu hafi þegar keypt skuldabréf fyrir 40.000 milljónir evra, þar af séu 25.000 grísk og valdi þetta „verulegri óánægju“ í þýska seðlabankanum. Hvorki Angela Merkel né forstjóri Deutsche Bank hafa farið leynt með efasemdir sínar um, að Grikkir geti staðið í skilum. Í febrúar sl. ákváðu margir stórir þýskir bankar að hætta að veita gríska ríkinu ný lán af ótta við stöðu fjármála í landinu.

Franskir bankar eru með 51 milljarð evra í grískum skuldabréfum en þýskir bankar með 31 milljarð evra.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS