Fimmtudagurinn 22. apríl 2021

Mat Moody´s fyndið segir LEX


12. júní 2010 klukkan 12:39

Hinn virti fjármáladálkur LEX í Financial Times segir í dag, að það sé fyndið, að Moody´s hafi komizt að þeirri niðurstöðu, að evrópskir bankar séu öruggir. Í dálkinum er bent á að fjármálamarkaðir hafi komizt að annarri niðurstöðu og telja höfundarnir, að þeim sé betur treystandi en fólki, sem hafi gefið ruslbréfum AAA-einkunn.

Lex segir ástæðu til að hafa áhyggjur af jaðarríkjum evrusvæðisins eins og Grikklandi, Portúgal, Spáni og Írlandi en mestum áhyggjum valdi þó Spánn. Meira en helmingur nær 1000 milljarða evra útlána þeirra 30 banka, sem Moody´s hafi skoðað séu til Spánar. Svo lengi, sem vextir séu lágir geti Spánverjar borgað en hækki vextir geti þeir það ekki m.a. vegna þess að fjórðungur Spánverja séu atvinnulausir. Þá telur Lex að ekki séu öll kurl komin til grafar í stöðu evrópsku bankanna og nefnir sérstaklega Landesbankana í Þýzkalandi og sparisjóðina á Spáni.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS