Atlantshafsbandalagið er nú í fyrsta sinn í 60 ára sögu sinni rekið með halla. Því er haldið fram, að hallinn nemi 430-500 milljónum evra. Af þessum sökum og vegna niðurskurðar í opinberum útgjöldum aðildarríkja NATÓ er nú unnið að niðurskurði útgjalda í höfuðstöðvum bandalagsins. Þetta kom fram eftir fund Anders Fogh Rasmussens, framkvæmdastjóra bandalagsins með varnarmálaráðherrum aðildarríkjanna sl. fimmtudag.
Ætlunin er að draga úr margvíslegri yfirbyggingu í höfuðstöðvum NATÓ, fækka nefndum verulega og draga úr öðrum kostnaði. Rasmussen telur, að hægt sé að nota fjármálakreppuna í Evrópu til þess að draga úr kostnaði og gera rekstur bandalagsins gagnsærri.
Búizt er við að framlög aðildarríkja til varnarmála verði skorin niður eða frestað sem nemi 1,5 milljarði evra. Á árinu 2009 er talið, að einungis fimm aðildarríkjanna hafi staðið við skuldbindingar um að verja 2% af vergri landsframleiðslu til varnarmála, þ.e. Albanía, Bretland, Frakkland, Grikkland og Bandaríkin. Búlgaría og Tyrkland fóru niður fyrir þessi mörk 2009 eftir að hafa náð þeim 2008. Í Eistlandi námu þessi framlög 1,9%, í Lúxemborg 0,5% og í Þýzkalandi 1,4%.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.