Ítalska blaðið Il Sole hefur birt bréf frá 100 hagfræðingum á Ítalíu, sem gagnrýna harðlega aðhaldsaðgerðir Evrópusambandsins og telja, að þær muni leiða til minnkandi hagvaxtar og samdráttar í efnahagslífi Evrópuríkja. Þeir telja, að aðgerðirnar muni ekki styrkja evrusvæðið heldur leiða til þess að þau aðildarríki evrunnar, sem standi höllum fæti muni yfirgefa þann gjaldmiðil. Önnur ríki muni gefast upp á evrunni til þess að ná á ný stjórn á eigin fjármálum og efnahagsmálum.
Hagfræðingarnir hundrað telja að lausnin á fjármálakreppunni sé ekki sú að lækka laun og lífeyri og skera niður útgjöld til velferðar, menntunar og rannsókna. Þvert á móti leiði þessar aðgerðir til aukins atvinnuleysis og gjaldþrota fyrirtækja. Þeir segja vandamál evrunnar ekki til komin vegna bókhaldssvika og of mikillar eyðslu heldur vegna tengingar við alheimskreppu og jafnvægisleysi innan evrusvæðisins.
Ítölsku hagfræðingarnir beina spjótum sínum sérstaklega að Þýzkalandi og segja að áherzla Þjóðverja á að halda niððri launakostnaði til þess að auka samkeppnishæfni þýzkrar framleiðslu og auka markaðshlutdeild Þjóðverja í Evrópu hafi leitt til hagstæðs viðskiptajöfnuðar Þýzkalands en mikillar skuldasöfnunar í Suður-Evrópu.
Þetta sé ástæðan fyrir því að fjármálamarkaðurinn hafi tekið stöðu gegn evrunni. Afleiðingin verði sú, að skatttekjur minnki og erfiðara verði að greiða skuldir, bæði opinberar skuldir og einkaskuldir.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.