Evrópuvaktinni hefur borizt eftirfarandi yfirlýsing frá Ísafold, félagi ungs fólks gegn ESB-aðild í tilefni af 17. júní:
„Ísafold - félag ungs fólks gegn ESB-aðild óskar landsmönnum til hamingju með daginn. Ísland hefur verið sjálfstætt lýðveldi í 66 ár og vonast Ísafold til þess að á því verði engin breyting í framtíðinni. Félaginu þykir af þessum sökum óheppilegt að leiðtogaráð ESB skuli á þjóðhátíðardegi Íslands taka fyrir aðildarumsókn landsins að ESB. Skoðanakannanir sýna mikla andstöðu við aðild og t.a.m. sýnir nýleg könnun á vegum MMR að nær 60% þjóðarinnar vill draga umsóknina til baka og að 67% þjóðarinnar finnst að þeim 990 milljónum króna sem umsóknarferlið er áætlað kosta sé mjög eða frekar illa varið. Þrátt fyrir að fundur leiðtogaráðs ESB kasti óneitanlega nokkrum skugga á þennan afmælisdag lýðveldisins lítur Ísafold með bjartsýni fram á veginn, fullviss þess að Íslendingar muni taka rétta ákvörðun þegar þar að kemur og standi sameinaðir sem sjálfstæð, fullvalda þjóð um ókomin ár.
Stjórn Ísafoldar “
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.