Í frétt AFP 17. júní segir, að Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, fagni ákvörðun leiðtogaráðs ESB um, að aðlögunarviðræður skuli hafnar við Ísland af hálfu framkvæmdastjórnar ESB. Aðild að ESB muni veita Íslendingum meiri áhrif á ákvarðanir, sem snerti þá.
„Þetta er góður dagur fyrir Ísland og fyrir okkur öll,“ er haft eftir Össuri. „Við eigum heima í Evrópu og aðild Íslands að ESB mun áreiðanlega þjóna gagnkvæmum hagsmunum okkar. Íslendingar fá þá tækifæri til að verða þátttakendur, en ekki áhorfendur, við töku ákvarðana, sem snerta framtíð þeirra.“
Í fréttinni segir, að leiðtogaráðið hafi lýst yfir, að Ísland „fullnægi pólitískum skilyrðum“ og „hefja skuli aðlögunarviðræður“, þrátt fyrir ágreining við Íslendinga um hvalveiðar og vegna fjárhagslegra vandkvæða eftir hrun stærstu banka landsins árið 2008
„Sem aðilar að innri markaðnum vegna EES-aðildar og þátttakendur í Schengen höfum við þegar lokið stórum hluta maraþonsins,“ sagði Össur. „Ég er bjartsýnn á, að með hugkvæmni og mikilli vinnu muni allir komast í mark að lokum.“
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.