Brezka ríkisstjórn ætlar að leggja sérstakan skatt á bankana, sem nemur um 3 milljörðum sterlingspunda og er gert ráð fyrir, að skatturinn verði lagður á heildareignir þeirra. George Osborne, fjármálaráðherra Breta staðfesti þetta í gær og sagði að aðgerðirnar yrðu erfiðar en sanngjarnar. Svipaðar hugmyndir um skattlagningu banka hafa verið á ferðinni í Bandaríkjunum en verði af þessum áformum Breta yrðu þeir fyrsta þjóðin í heimi, sem legði slíkan skatt á banka.
Myners, lávarður ,fyrrverandi bankamálaráðherra Breta sagði í Daily Telegraph í morgun að ekki væri hægt að leggja á slíkan skatt án þess að alþjóðleg samstaða væri um skattlagningu banka. Bankar frá öðrum löndum gætu ella boðið þjónustu á lægra verði en brezkir bankar.
Daily Telegraph segir, að alþjóðleg samstaða sé að verða til um bankaskatt og að leiðtogar ESB-ríkja séu sammála um slíkan skatt í grundvallaratriðum, sem þýðir væntanlega að útfærslan sé eftir. Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hefur lagt til tvenns konar skatt á banka, annars vegar á eignir þeirra en hins vegar á hagnað.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.