Þriðjudagurinn 19. janúar 2021

Áframhaldandi óvissa um Spán


21. júní 2010 klukkan 09:24

Grikkland er aukaatriði, eins konar forleikur. Spánn er aðalmálið. Ástandið þar mun hafa gífurleg áhrif á framtíð evrunnar og hvort sett verður upp eftirlitskerfi með fjárlögum aðildarríkja evrunnar. Þetta segir Irwin Stelzer, dálkahöfundur í Wall Street Journal í morgun. Og segir að þess vegna hafi leiðandi menn ú fjármálaheiminum komið saman í Madrid í lok síðustu viku.

Spánn er fjórða stærsta efnahagseininga ESB, fjórum sinnum stærri en Grikkland. Spænskir bankar hafa ekki lengur aðgang að alþjóðlegum fjármálamörkuðum eða millibankamörkuðum.Þess vegna eru þeir nú stærstu viðskiptaaðilar Seðlabanka Evrópu. Í maímánuði fengur þeir lánaðar tæpar 86 milljarða evra í seðlabankanum og í apríl tæplega 75 milljarða evra. Spænska bankakerfið er um 10% af stærð bankakerfis evrusvæðisins Þrátt fyrir að allir aðilar neiti því harðlega er stöðugur orðrómur á kreiki í Evrópu um að í undirbúningi sé framlag til Spánar úr björgunarsjóði ESB/AGS, segir Irwin Stelzer, sem bætir því við að framtíð Zapateros, sem forsætisráðherra Spánar sé álíka björt og framtíð Tonu Hayward, aðalforstjóra BP-olíufélagsins.

Fjármálamarkaðir hafa ekki róast þrátt fyrir loforð um að álagspróf á spænska banka verði birt. Þeir segja að prófin hafi náð til fárra banka og ekki verið gert ráð fyrir í þeim verulegum vandamálum bankanna.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS