Finnska þingið hefur samþykkt heimild til þess, að reist verði tvö ný kjarnorkuver í Finnlandi, samhliða því sem geymslurými fyrir kjarnorkuúrgang verði stækkað.
Þingið samþykkti fimmtudaginn 1. júlí með 120 atkvæðum gegn 72, að orkufyrirtækið Teollisuuden Voima reisti nýtt kjarnorkuver í Olkiluoto. Með 121 gegn 71 var síðan samþykkt, að Fennovoima reisti annað kjarnorkuver annað hvort í Simo eða Pyhäjoki í norðurhluta Finnlands. Eftir að nýju orkuverin koma til sögunnar verða alls sjö kjarnorkuver í Finnlandi.
Þá samþykkti þingið með 159 atkvæðum gegn 35 að stækka geymslu fyrir kjarnorkuúrgang í Posiva.
Þingið komst að niðurstöðu sinni eftir tveggja daga umræður. Þingmenn úr hægri flokknum, miðflokknum og flokki jafnaðarmanna voru helstu stuðningsmenn kjarnorkuveranna en þingmenn græningja og vinstri hreyfingarinnar voru á móti. Þingmenn voru ekki bundnir af samþykktum þingflokka sinna við afgreiðslu málsins.
Undir atkvæðagreiðslunni ruddist hópur mótmælenda á þingpalla með háreysti. Voru pallarnir ruddir af starfsmönnum þingsins, þegar mótmælendur sungu þjóðsöng Finna, eins og segir á vefsíðu finnska þingsins.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.