Svavar Gestsson kvartar undan „belgingi“ Sjálfstæðisflokksins

Svavar Gestsson, fyrrverandi sendiherra og áður einn af helztu forystumönnum Alþýðubandalagsins skrifar grein í Fréttablaðið í dag þar sem hann varpar fram þeirri spurningu „hvort hin nýja mótmælahreyfing Sjálfstæðisflokksins gegn umsókninni – með óljósri afstöðu og tæknilegri til aðildar – kallar ekki á nauðsyn þess, að þeir andstæðingar ESB-aðildar sem styðja umsóknarferlið stofni sérstaka og nýja hreyfingu gegn aðild að ESB. Af því að þetta fólk styður engan veginn Sjálfstæðisflokkinn og vaxandi belging hans í ESB-umræðunni þessa dagana“
Í grein Svavars segir ennfremur:
„Í greinargerð með tillögu til þingsályktunar um að taka umsóknina til baka er tjaldað til röksemdum gegn umsókn fremur en aðild. Kvartað er um slælegan undirbúning stjórnvalda, kostnað við aðildarumsóknina og ágreining ríkisstjórnarflokkanna um málið!“
Einn af flutningsmönnum þingsályktunartillögunnar var sem kunnugt er Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður Vinstri grænna. Forystumenn úr röðum Vinstri grænna hafa frá upphafi verið forystumenn Heimssýnar, sem er þverpólitísk samtök sem vinna gegn aðild Íslands að ESB. Fyrsti formaður þeirra var Ragnar Arnalds, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra Alþýðubandalagsins. Núverandi formaður Heimssýnar er Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður Vinstri grænna.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Merkel á löngum einkafundi með Frans páfa
Angela Merkel Þýskalandskanslari ræddi í 45 mínútur við Frans páfa á einkafundi laugardaginn 18. maí,. Fréttastofan Deutsche Welle segir að óvenjulegt sé að einkafundir með páfa séu svo langir. Merkel er leiðtogi kristilegra demókrata í Þýskalandi þar sem kaþólskir kjósendur skipta miklu. Merkel er ...
Ítalir efna til fjöldamótmæla í Róm - Merkel líkt við nasistaforingja
Um 100.000 manns mótmæltu í Róm laugardaginn 18. maí. Forystumenn verkalýðssamtaka stjórnuðu aðgerðunum undir rauðum fánum og markmið þeirra var að knýja fram stefnubreytingu hjá nýrri ríkisstjórn landsins undir forsæti Enricos Letta sem kemur úr röðum vinstri manna. Þá einkenndust mótmælin einnig a...
ESB setur reglur um ólívuolíu á borðum veitingastaða - aðeins í verksmiðjumerktum flöskum
Víða á veitingastöðum á meginlandi Evrópu, í Bretlandi og hér á landi er borin var ólívuolía í litlum flöskum eða henni er hellt á skálar, hún er græn eða jafnvel gyllt á litinn og erlendis tíðkast víða að eigendur veitingastaða semji við ólívubændur beint um kaup á framleiðslu þeirra.
Alaska Dispatch: Eiga Grænland og Færeyjar að fá sjálfstæða aðild að Norðurskautsráðinu?
Mia Bennett, sem fjallar um málefni Norðurslóða m.a. á vefmiðlinum Alaska Dispatch segir að nú beinist athyglin í málefnum Norðurskautsráðsins að því, hvort Grænland og Færeyjar eigi að fá sjálfstæða aðild að ráðinu með sama rétt og aðrir meðlimir þess eða endurheimta stóla við borðið á fundum þess....