Föstudagurinn 24. maí 2013

Króatía ekki í ESB fyrr en 2013

segir fulltrúi ESB-þingsins vegna aðildarinnar


12. júlí 2010 klukkan 14:17

Króatía gæti hugsanlega orðið aðili að Evrópusambandinu árið 2013, segir Hannes Swoboda, sem fylgist með aðildarferli Króatíu fyrir hönd ESB-þingsins.

Hann lét þessi orð falla á ráðstefnu í Dubrovnik í Króatíu um helgina, þar sem rætt var um aðild ríkjanna á vestanverðum Balkanskaga að ESB.

Hannes Swoboda

Að Swoboda skyldi nefna árið 2013 gladdi Króata ekki, því að til þessa hafa þeir talið, að 2012 yrðu þeir aðilar að ESB. Swoboda sagðist ætla að beita sér fyrir því, að fyrir sumarið 2011 lægi fyrir samþykki ESB-þingsins við aðild Króatíu.

Jadranka Kosor, forsætisráðherra Króatíu, sagðist engu að síður vongóð um, að skjót aðildarniðurstaða fengist, aðeins væru „500 metrar“ í ESB-markið hjá Króötum.

Í austurríska blaðinu Der Standard segir, að innan ESB séu ýmis ríki, þar á meðal Frakkland og Þýskaland, andvíg frekari fjölgun Balkanríkja. Borut Pohar, forsætisráðherra Slóveníu, lýsti áhyggjum yfir því, ef ekki yrði unnið að því að hleypa fleiri Balkan-ríkjum inn í ESB eftir aðild Króatíu. Hann sagðist hafa setið í leiðtogaráði ESB í eitt og hálft ár. Þar hefði enginn minnst á frekari stækkun ESB á þessum slóðum en með Króatíu. Það mætti rekja til tvíhliða vandræða milli ríkja á Balkanskaga.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Framkvæmda­stjórn ESB rann á rassinn í stóra ólívuolíumálinu

Framkvæmda­stjórn ESB hefur ákveðið að falla frá tillögu um að banna opna dreifingu á olívuolíu á borðum veitingastaða eftir harða gagnrýni á áform um að hrinda henni í framkvæmd 1. janúar 2014 með kröfu um að framvegis yrði olían aðeins borin fram í flöskum með föstum töppum. Dacian Ciolos, landbún...

Noregur: Enginn sótti um embætti hæstaréttardómara

Auglýst var eftir umsóknum um embætti hæstaréttardómara í Noregi og rann umsóknarfrestur út 10. maí sl. Enginn sótti um embættið sem ætlunin var að veita frá 1. janúar 2014. Þetta vekur nokkra undrun þar sem bæði er um virðulegt og vel launað starf að ræða, árslaunin eru um 1,5 m. norskar krónur eða...

Osló: Norsk stjórnvöld töldu aðild Íslands að ESB aldrei líklega - vænta aukins samstarfs til að styrkja stöðuna innan EES

Norskir stjórnmálamenn áttu aldrei von á að ESB-aðildar­viðræðurnar yrðu leiddar til lykta undir forystu ríkis­stjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og kippa sér því ekki upp við fréttir frá Íslandi um að ný ríkis­stjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar hafi kynnt hlé á ESB-viðræðunum.

David Cameron: Það hefur verið gerð hryðjuverkaárás á breskt þjóðlíf

David Cameron, forsætis­ráðherra Bretlands, segir að ráðist hafi verið að Bretum og bresku þjóðlífi miðvikudaginn 22. maí þegar tveir menn grunaðir um að vera öfgafullir islamistar drápu breskan hermann með köldu blóði um miðjan dag fyrir framan herbúðir í London. Ráðherrann sagði fimmtudaginn 23. ma...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS