Ríkisstjórn Sviss hefur hafnað tilmælum um, að Roman Polanski, kvikmyndaleikstjórinn heimskunni, verði framseldur til Bandaríkjanna, vegna ákæru um, að hann hafi misnotað 13 ára stúlku kynferðislega árið 1977.
Dómsmálaráðuneyti Sviss sagði í tilkynningu um niðurstöðuna um hádegisbil 12. júlí, að við töku ákvörðunarinnar hefðu svissnesk yfirvöld tekið mið af þjóðarhagsmunum. Polanski væri nú frjáls ferða sinna.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Einar K. Guðfinnsson, forseti alþingis, ræðir stöðu Íslendinga í samfélagi þjóðanna í hátíðarræðu
Einar K. Guðfinnsson, forseti alþingis, flutti þjóðhátíðarræðu mánudaginn 17. júni í Búðardal. Hann vék meðal annars að stöðu Íslands og Íslendinga í samfélagi þjóðanna og sagði: „Svo sannarlega erum við Evrópuþjóð en það þýðir ekki að við viljum verða Evrópusambandsþjóð.“ Hér birtist kafli úr ræðu...
José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, sætir harðri gagnrýni franskra stjórnvalda vegna ummæla í viðtali við dagblaðið The Internartional Herald Tribune (IHT) sem birtist mánudaginn 17. júní þar sem hann segir það „afturhaldssemi“ að Frakkar vilji halda hljóð- og myndframleiðslu utan ...
Tvíhliða viðskiptaviðræður ESB og BNA formlega hafnar
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, kynnti mánudaginn 17. júní fyrir fund G8 ríkjanna á Norður-Írlandi áform um „stærsta tvíhliða viðskiptasaming í sögunni“ milli ESB og Bandaríkjanna. Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði að fyrsta viðræðulota vegna samninganna yrði í Washington í júlí. Stef...
Finnland: Meirihluti andvígur aðild að Atlantshafsbandalaginu
Meirihluti Finna eða um 52% telur að Finnland eigi ekki að gerast aðili að Atlantshafsbandalaginu. Þetta hlutfall hækkaði í 59%, þegar spurt var um afstöðu til aðildar að NATÓ ef Svíar gerðust aðilar. Einungis 28% sögðust vilja feta í fótspor Svía. Sérfræðingar segja að þessi könnun sýni að engin breyting hafi orðið á afstöðu Finna.