Hið sameiginlega evrópska álagspróf á banka er talið verða erfiðara en upphaflega var ætlað. Þýska blaðið Handelsblatt segir 12. júlí, að ef til vill muni 10 til 15% af bönkunum ekki standast prófið. Vitnar blaðið þar í heimildarmann í stjórn þýsks banka.

Stjórnarmaðurinn telur, að meira en 10 bankar í Evrópu, þar af einn eða tveir í Þýskalandi, falli á prófinu. Ætlunin er að birta niðurstöður í prófinu 23. júlí í því skyni að sanna fyrir fjárfestum, að evrópska bankakerfið sé nógu sterkt til að standa af sér skuldakreppuna á evru-svæðinu og niðurskurð ríkisútgjalda til að vinna á kreppunni.
Handelsblatt hefur eftir hinum ónafngreinda heimildarmanni sínum, að prófin verði að vera trúverðug til að skapa traust. Blaðið vitnaði einnig til ónafngreindra manna í fjármálaheiminum, sem sögðu, að prófin væru ekki „sýndarmennska“, og þar yrðu lagðar raunir fyrir bankana, sem þeir kynnu einhvern daginn að þurfa að ganga í gegnum. Talið er, að einn eða tveir af þýsku Landesbönkunum, það er bönkum í eigu einstakra landa þýska sambandslýðveldisins, kunni að heltast úr lestinni.
Bankaeftirlitsmenn í einstökum ríkjum munu efna til prófanna og verða þau lögð fyrir 91 banka. Látið verður á það reyna, hvaða áhrif það hefur á banka, ef efnahagsástandið versnar enn og þeir þurfi að afskrifa ríkisskuldabréf í eignasafni þeirra. Í hópi hinna 91 fjármálastofnana eru fulltrúar 65% af bankakerfi Evrópu. Standist banki prófið, þolir hann álagið vegna efnahagshremminganna, sem látnar eru dynja á honum. Falli banki á prófinu sýnir það, að auka þarf eigið fé hans við hinar tilbúnu aðstæður.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Grikkland: Dómstóll frestar lokun ríkisútvarpsins
Stjórnsýsludómstóll Grikklands hefur frestað ákvörðun ríkisstjórnar landsins um að loka ríkisútvarpinu, ERT. Dómstóllinn sagði mánudaginn 17. júní að ERT gæti starfað áfram þar til nýtt ríkisútvarp kæmi til sögunnar. Deilur hafa verið um lokun ERT síðan Antonis Samaras forsætisráðherra tók ákvörðun...
Birgir Ármannsson segir Damanaki kikna undan þrýstingi ESB-þingmanna
Birgir Ármannsson, formaður utanríkismálanefndar alþingis, sagði við fréttastofu ríkisútvarpsins mánudaginn 17. júní að Maria Damanaki, sjávarútvegsstjóri ESB, hefði mælt harkalega í garð Íslendinga á ESB-þinginu í síðustu viku vegna þrýstings frá þingmönnum. Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráð...
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra brá skildi fyrir Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, í þjóðhártíðarávarpi sínu á Austurvelli mánudaginn 17. júní þegar hann lýsti undrun yfir að menn hefðu efast um hvort viðeigandi hefði verið fyrir forseta að ræða fullveldismál við þingsetningu. Sig...
Grænland: Áform um laxveiðar í sjó valda áhyggjum
Áform Grænlendinga um laxveiðar í sjó valda áhyggjum nágrannaríkja segir á vefmiðlinum Alaska Dispatch. Þar kemur fram, að Grænlendingar hafi ekki stundað laxveiðar í sjó í áratug í þágu verndunaraðgerða. Nú hafi þeir hins vegar tilkynnt um stefnubreytingu, sem hafi verið rædd á fundi á Írlandi fyrr í þessum mánuði en sá fundur hafi ekki borið árangur.