Bandaríkin láta verkin tala á meðan Evrópa og þó sérstaklega Þýzkaland gera ekkert annað en tala, segir þýzka tímaritið Der Spiegel í umfjöllun um nýja fjármálalöggjöf í Bandaríkjunum. Báðar deildir Bandaríkjaþings samþykktu endanlega útgáfu af hinni nýju löggjöf á fimmtudag í síðustu viku, sem Spiegel segir, að sé svar Bandaríkjanna við bankakreppunni, sem hafi hafizt fyrir meira en þremur árum.
Hin nýja löggjöf styrkir stöðu viðskiptavina banka og annarra fjármálafyrirtækja að sögn þýzka tímaritsins, eflir eftirlitsaðila en takmarkar möguleika fyrirtækjanna á að stunda áhættusöm viðskipti. Spiegel segir, að framvegis verði hina nýja bandaríska löggjöf viðmið annarra ríkja. Evrópskir bankar, sem stundi viðskipti í Bandaríkjunum verði að laga starfsemi sína að löggjöfinni, sem takmarki möguleika Evrópu á að setja annars kon ar reglur um starfsemi fjármálafyrirtækja.
Der Spiegel spyr hvers vegna Bandaríkin séu svo langt á undan Evrópuríkjum í umbótum á starfsemi fjármálafyrirtækja og segir, að ástæðan sé sú, að þjóðþing einstakra ESB-ríkja hafi ekki frumkvæðisrétt, þegar kemur að löggjöf um fjármálageirann. Þann rétt hafi framkvæmdastjórnin í Brussel ein en hún hafi ekki lagt fram eina einustu tillögu í þessum efnum.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.