Fimmtudagurinn 30. júní 2022

Læknar í Bretlandi: ESB-vinnutími of stuttur-aðgerðir of fáar


1. ágúst 2010 klukkan 10:30

Læknar í Bretlandi hafa miklar áhyggjur af því að reglur Evrópusambandsins um vinnutíma lækna leiði til þess að sjúklingar fái lakari meðferð en áður og færist á milli vakta, sem leiði til þess, að enginn telur sig ábyrgan fyrir tilteknum sjúklingi. Þjálfun ungra lækna fari versnandi vegna þess, að þeir fái ekki nógu mörg tækifæri til þess að framkvæma aðgerðir. Mikill meirihluti eldri lækna telur, að til sé að verða ný kynslóð ungra lækna, sem verði latir og hugsi bara um eins konar 9-5 vinnudag.

Frá þessu er sagt í Sunday Telegraph í dag en þar kemur fram, að byrjunin á þessari þróun hafi verið á árinu 2007, þegar ný tilskipun ESB um hámarksvinnutíma lækna hafi tekið gildi og miðaðist við 56 klukkustunda vinnuviku. Nú sé hámarks vinnutímafjöldi á viku 48 klukkustundir.

Asfleiðingin sé sú, að ungir skurðlæknar fái muni minni þjálfun en áður af því að þeir vinni við of fáa uppskurði.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS