Frá og með 1. ágúst hafa bandarísk yfirvöld aðgang að millifærslum innan evrópska bankakerfisins. Fullyrt er, að þar með sé auðveldara en áður að vinna gegn hryðjuverkum. Hið svonefnda SWIFT-samkomulag milli ESB og Bandaríkjanna opnar Bandaríkjamönnum aðgang að þeim bankafærslum, sem fara í gegnum kerfi hins alþjóðlega millifærslufyrirtækis, sem hefur höfuðstöðvar í Brussel.
Um kerfi SWIFT fer um 80% af öllum rafrænum bankafærslum. Fyrirtækið tryggir samskipti 8.000 banka í 200 löndum. Bandarísk yfirvöld munu geta krafist upplýsinga um millifærslur til á frá ESB-ríkjum um heim allan. Verða upplýsingarnar sendar óflokkaðar til Bandaríkjanna.
Þegar SWIFT-samkomulagið var til umræðu á ESB-þinginu lýstu ýmsir þingmenn áhyggjum yfir þvi, að upplýsingamiðlunin bryti í bága við persónuvernd. Málið var í mörg ár til umræðu í þinginu, eða allt frá 2006. Bandaríkjastjórn knúði mjög á um gerð samkomulagsins og í ávarpaði Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, ESB-þingið til að leggja áherslu á afgreiðslu málsins.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.