Fimmtudagurinn 21. janúar 2021

ESB-andstæðingar hætti að „öskra“ og fari að ræða málið

segir Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, við AFP


3. ágúst 2010 klukkan 10:08

„Þeir eru mjög háværir gegn ESB. Mestu skiptir er, að þeir hætti að öskra og taki til við að ræða málið,“ sagði Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins.

Helgi Magnússon

„Við munum gera allt, sem í okkar valdi stendur til að hafa áhrif á viðræðurnar, svo að niðurstaðan verði eins hagstæð og frekast má,“ hét hann.

Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri fyrirtækis, sem sérhæfir sig í orkusparnaði innan sjávarútvegsins [Marorku], harmaði hinn mikla kostnað íslenskra fyrirtækja vegna sveiflukennds gjaldmiðils.

„Við erum Evrópuþjóð með evrópska menningu og við ættum að vera hluti af Evrópusambandinu,“ sagði hann.

Þetta kemur fram í fréttaskýringu, sem franska AFP-fréttastofan sendi frá sér 2. ágúst frá sínum manni í Reykjavík, án þess að nafns hans sé getið. Er til þess vísað, að formlegar viðræður hafi hafist um aðild Íslands að ESB, en Íslendingar láti sér fátt um finnast, þar sem ágreiningur vegna fiskveiða og endurvakinn þjóðarmetnaður megi sín meira en ESB-áhugi.

Rætt er við Gest Má Fanndal á göngu í Reykjavík og hann lýsir efamsemdum um aðild. Elías Halldór Ágústsson í Háskóla Íslands er hrifinn af aðild, hún geti bundið enda á landlæga spillingu og „nepótisma“ að hans mati. Minnt er á, að í skoðanakönnun í júní hafi 60% Íslendinga lýst andstöðu við ESB-aðild en aðeins 26% verið hlynntir.

Fréttaritarinn hefur farið til Sandgerðis og meðal annars hitt Hjört Alfreðsson, sem lýsir andstöðu við aðild af ótta við áhrif hennar á sjávarútveginn. Undir lok frásagnar sinnar birtir hann síðan þau ummæli, sem birtast efst í þessari endursögn.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS