Mánudagurinn 1. mars 2021

600 þúsund opinberir starfsmenn í Bretlandi munu missa vinnuna


10. ágúst 2010 klukkan 08:32

David Cameron

New York Times segir, að áformaður niðurskurður ríkisstjórnar Davids Camerons í Bretlandi sé hinn mesti, sem brezk stjórnvöld hafi ráðizt í frá heimsstyrjöldinni síðari. Niðurskurðurinn sé byrjaður að bíta, þótt hann sé rétt að hefjast. Blaðið segir að áður en upp verði staðið megi gera ráð fyrir að 600 þúsund starfsmenn opinbera geirans í Bretlandi hafi misst atvinnu sína. Laun opinberra starfsmanna verði fryst í tvö ár.

Niðurskurðurinn kemur þegar víða við. Þannig hefur Oxfordhérað orðið að loka 161 eftirlitsmyndavél með umferðinni. Fjárframlög til bygginga nýrra skóla og viðhalds á gömlum skólum hafi verið stöðvuð. Opinberar stofnanir fá misvísandi upplýsingar um, hvort þær eru til eða ekki til og er kvikmyndasjóður í Bretlandi nefndur sem dæmi um það. Starfsfólki hans hafði verið sagt að búið væri að leggja hann niður. Í brezka þinginu var sagt að að slíkt stæði til.

BBC á í vök að verjast vegna fjárframlaga til þess og í menningarlífinu er talað um að bæði leikhúsum og myndlistarsölum verði lokað.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS