Uffe Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur – og reglulegur gestur í íslenzkum laxveiðiám – skrifar grein í Berlingske Tidende í gær, þar sem hann vekur athygli á þeim áhuga, sem Rússar sýni Dönum um þessar mundir. Hann segir þessi áhugi byggist á legu Danmerkur og aðstöðu Dana til að fylgjast með skipaferðum inn og út úr Eystrasalti. Áhugi Rússa komi m.a. fram í því að á næsta ári séu áformaðar sameiginlegar heræfingar Rússa og Dana.
Uffe Ellemann-Jensen bendir á, að bandarísk hugveita hafi veitt þessum áhuga Rússa meiri athygli en danskir fjölmiðlar og telji að Danir séu eins konar utangarðsmenn í samstarfi ESB-ríkja á sviði varnar- og öryggismála. Þjóðverjar, Pólverjar og þjóðir Eystrasaltsríkjanna taki muni meiri þátt í því. Hinn fyrrverandi utanríkisráðherra Dana segir áhugaleysi Dana um þetta samstarf ESB-ríkjanna á sviði öryggismála óskiljanlegt. Hann segir mikilvægt að Danir geri Rússum ljóst, að þeir (Danir) séu ekki einir á bát og eðlilegra væri að heræfingarnar væru sameiginlegar æfingar Rússa og Nató fremur en Rússa og Dana.
Hann bendir á að Rússar hafi stundað heræfingar, sem sýni áform um að ráðast á og leggja undir Rússland Eystrasaltsríkin þrjú en fagnar því að Atlantshafsbandalagið hyggi á æfingar til þess að sýna varnarmátt þess fyrir hönd ríkjanna þriggja.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.