Framkvæmdastjórn ESB í Brussel liggur undir ámæli fyrir að að veita mjög takmarkaðan fjárhagslegan stuðning til Pakistan vegna flóðanna þar. Raunar svo mjög, að Frakklandsforseti sendi Barroso, forseta framkvæmdastjórnarinnar bréf sl. sunnudag, þar sem hann lýsti þeirri skoðun, að Brussel gæti gert betur.
Barroso svaraði bréfinu og tók upp hanzkann fyrir framkvæmdastjórnina og sagði að hún hefði verið fyrst allra til að heita stuðningi við Pakistan, sem nam 40 milljónum evra. Jafnframt lýsti Barroso þeirri skoðun, að það væru fyrst og fremst aðildarríki ESB, sem ættu að koma Pakistönum til hjálpar.
BBC sagði frá því í morgun, að framkvæmdastjórnin hefðu nú lofað auknum framlögum þannig að heildarupphæðin frá Brussel væri komin í 70 milljónir evra.
Framkvæmdastjórnin hefur lagt fram 90 þúsund evrur til hjálparstarfs vegna eldanna í Rússlandi. Það hefur líka vakið athygli hve lág sú upphæð er. Þetta kemur fram á euobserver.
Nú hafa um 2000 manns látizt í flóðunum í Pakistan og 722 þúsund heimili orðið fyrir miklu tjóni. Talið er að flóðin hafi haft alvarleg áhrif á 20 milljónir manna en flóðasvæðin eru á stærð við England.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.