Sunnudagurinn 24. janúar 2021

„Ég væri algerlega mótfallinn því“, segir Steingrímur J. um aðlögunarferli í stað samningaviðræðna


25. ágúst 2010 klukkan 08:32

Steingrímur J. Sigfússon

Lilja Mósesdóttir, alþingismaður Vinstri grænna segir í Morgunblaðinu í dag, að hún hafi ekki verið að greiða atkvæði með aðlögun Íslands að ESB á Alþingi 16. júlí 2009. „Ég hef áhyggjur af því ef við erum að fara í eitthvert aðlögunarferli, sem alls ekki var ætlunin, þegar a.m.k. ég greiddi atkvæði með þessari umsókn“, segir Lilja í samtali við blaðið og bætir því við að nauðsynlegt sé að fara yfir málið og fá á hreint hvernig ferlið sé nákvæmlega.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG sagði á fundi með blaðamönnum í gær skv. frásögn Morgunblaðsins, aðspurður um afstöðu hans ef í ljós kæmi að um aðlögunarferli væri að ræða:

„Ekki, ef það þarf að fara að gera einhverjar breytingar á stofnunum og lögum á Íslandi fyrirfram. Þá er ég það ekki. Ég væri algerlega mótfallinn því“, en bætti við að hann sjálfur teldi ekki að um aðlögunarferli væri að ræða.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS