Ný almannatengslastefna José Manuels Barrosos, forseta framkvæmdastjórnar ESB, sætir mikilli gagnrýni í fjölmiðlum, þar á meðal ákvörðun hans um að halda stefnuræðu í ESB-þinginu þriðjudaginn 7. september
Sian Herbert, hjá bresku hugveitunni Open Europe, sagði í The Sunday Telegraph í London: „Fjárveitingar til að bæta ímynd Barrosos er enn eitt dæmið um fáfengileikann hjá ESB á kostnað skattgreiðenda... í stað þess að borga fyrir myndir og myndbönd af forseta framkvæmdastjórnar, sem enginn kýs, ætti ESB að gjörbreyta ímynd sinni með því að taka til við að hlusta á fólk og hætta að sólunda fé þess.“
Fjölmiðlar segja, að ESB-þingmenn verði sektaðir um 60 evrur ( 9.000 ISK) fyrir að sækja ekki þingfund í þrjár klukkustundir og hlusta á Barroso flytja stefnuræðuna.
Talsmaður Barrosos hefur svarað þeim, sem gagnrýna nýju almannatengslastefnuna, og sagt, að stefnuræðan sé ekki flutt til að bæta ímynd Barrosos. Hann hafi annað og meira að gera en að hugsa um slíkt, þegar almenningur í Evrópu bíði réttilega eftir að stjórnmálamenn og stjórnarstofnanir veiti þeim leiðsögn og stefnu út úr kreppunni.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.