Richard Benyon, sjávarútvegsráðherra Breta, hafnaði 9. september sjónarmiðum íslenskra stjórnvalda í makríldeilunni. Þau voru kynnt honum í formlegu bréfi frá íslensku ríkisstjórninni. Hann hvatti bæði Færeyinga og Íslendinga til að semja um „sanngjarna og raunsæja“ lausn á deilunni.
Á vefsíðunni fishnewseu.com er haft eftir Benyon:
„Ég hef fengið bréf frá íslensku ríkisstjórninni, þar sem hún skýrir ástæður þess, að hún jók makrílkvóta sinn og ég því innilega ósammála.
Íslendingum var boðið að taka þátt í fundi strandríkja fyrir tveimur árum. Fyrr á þessu ári tók fulltrúi Íslands þátt í viðræðum um makríl við fulltrúa annarra þjóða, sem hafa áhuga á þessum veiðum. Viðræðurnar báru ekki árangur og ekki var samið um neina kvóta. Eftir það ákváðu Íslendingar einhliða að eigna sér næstum sex sinnum stærri veiðikvóta en þeir höfðu veitt síðustu ár. Þetta er óviðunandi hegðun sem eykur veiðarnar á umtalsvert og gæti valdið varanlegum skaða á makrílstofninum, þegar fram líða stundir.
Ég hvet bæði Íslendinga og Færeyinga til að semja um sanngjarna og raunsæja lausn á deilunni. Framkvæmdstjórn ESB mun, fyrir hönd ESB, efna til funda með Færeyingum og Íslendingum á næstu dögum og embættismenn [breska] sjávarútvegsráðuneytisins munu sitja þá af hálfu Breta.“
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.