Franska þingið er að ljúka afgreiðslu löggjafar um bann við að ganga utan dyra í búrku í Frakklandi. Búrka er búningur, sem múslimakonur klæðast til að hylja allan líkama sinn, frá toppi til táar. Bannað verður að ganga í þessum búningi á almannafæri í Frakklandi, hvort sem viðkomandi er búsettur í landinu eða á ferðalagi um það.
Þeir, sem brjóta gegn lögunum, mega vænta þess að verða sektaðir um allt að 150 evrur, tæplega 23 þúsund krónur. Þá má einnig skylda hina brotlegu til að sækja námskeið, þar sem stjórnvöld kenna það, sem þau kalla „gildi lýðveldisins“. Þeir, sem hvetja aðra til að hafa bannið að engu, geta sætt þyngri refsingu. Þá má dæma til að sitja allt að ári í fangelsi eða til að greiða sekt, sem gæti numið allt að 30.000 evrum, 4,5 milljónum íslenskra króna.
Samkvæmt lögunum er fólki bannað að hylja andlit sitt á almannafæri. Íslam er ekki nefnt í lögunum. Undantekningar eru gerðar fyrir óeirðalögreglu og skurðlækna. Lögin taka gildi eftir sex mánuði, svo framarlega sem stjórnlagaráð Frakklands fellst á efni þeirra. Ráðið hefur hafnað framkvæmd nokkurra laga á undanförnum árum.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.