Sunnudagurinn 7. mars 2021

Sarkozy sér engin tormerki á að Sígaunarnir fari til Lúxemborgar

Sarkozy hefur horn í síðu Lúxemborgara segir utanríkis­ráðherra landsins og lætur stjórnast af „illvilja“


15. september 2010 klukkan 15:29
Franska forsetaembættið
Nicolas Sarkozy

Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, lagði til miðvikudaginn 15. september, að Viviane Reding, dómsmálastjóri ESB, tæki á móti Sígaunum í Lúxemborg, heimalandi hennar. Forsetinn lét þessi orð falla á hádegisverðarfundi í Elysée-höll með öldungadeildarþingmönnum UMP, flokks forsetans. Á blaðamannafundi í Brussel 14. september sagði Reding, að framkoma Frakka í garð Sígauna væri þeim til vansæmdar og líktist því, sem gerðist í síðari heimsstyrjöldinni.

„Hann sagði að stefna okkar væri hin rétta og það væri til skammar... að ESB talaði þannig um aðgerðir Frakka,“ sagði Bruno Sido, öldungadeildarþingmaður, eftir fundinn með Sarkozy. „Hann sagði, að hann hefði ekki gert annað en beita evrópskum reglum, frönskum lögum og það væri ekki unnt að álasa Frökkum fyrir neitt í þessu sambandi, en ef konan frá Lúxemborg vildi taka á móti þeim [Sígaununum] hefði hann ekkert við það að athuga.“

„Þessi framkvæmastjórnarmaður ESB býr í Lúxemborg, sem er við hliðina á Frakklandi. Við mundum fagna því, ef þeir í Lúxemborg gætu tekið á móti nokkrum Sígaunum...þetta er ekki orðétt, sem hann sagði, en hann meinti þetta,“ sagði Michel Houel, öldungadeildarþingmaður.

Utanríkisráðherra Lúxemborgar brást strax við því, sem haft var eftir Frakklandsforseta. Hann sagðist telja, að Nicolas Sarkozy hefði sýnt „illvilja“. „Vivian Reding talaði ekki fyrir hönd Lúxemborgar. Hún er frá Lúxemborg en hún situr einnig í framkvæmdastjórn ESB og fer þar með dómsmál,“ sagði Jean Asselborn. „Að Nicolas Sarkozy skuli leggja að jöfnu uppruna framkvæmdastjórans og Lúxemborg ber vott um illvilja,“ bætti hann við. „Ég veit, að Nicolas Sarkozy hefur horn í síðu Lúxemborgara, en það má þó ekki ganga of langt. Sjálfur styð ég heilshugar þá stefnu, sem framkvæmdastjórnin hefur mótað.“

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS