Miklar umræður eru á Írlandi um, hvort Brian Cowen, forsætisráðherra, hafi verið undir áhrifum áfengis í viðtali við útvarpsstöðina RTE í síðustu viku. Þær raddir verða sífellt háværari, sem krefjast afsagnar ráðherrans.
Rætt var við forsætisráðherrann í níu mínútur, hann var þvöglumæltur og röflaði að sögn gagnrýneda hans. Cowen harðneitar því að hafa verið drukkinn í samtalinu, sem var tekið daginn eftir fund flokks hans í Galway. Í The Guardian segir, að rætt sé um, að ráðherrann hafi ekki yfirgefið hóf flokksmanna fyrr fjögur um nóttina. Í blaðinu segir, að fyrrverandi ráðherrar flokksins og margir almennir flokksmenn krefjist þess, að tafarlaust verði rætt um stöðu Cowens sem flokksleiðtoga.
„Mér finnst þetta dapurlegt. Þetta er alls ekki satt,“ sagði Cowen, þegar hann var spurður að því, hvort hann hefði verið undir áhrifum í útvarpsviðtalinu.
Hvað sem þessu líður hvílir mikið á írska forsætisráðherranum. Stjórnarflokkurinn, Fianna Fáil, liggur undir gagnrýni fyrir að taka ekki nægilega vel á efnahagsvanda Íra. Samkvæmt The Guardian sýnir skoðanakönnun, að meira en 70% Íra telur, að viðbrögð ríkisstjórnarinnar vegna kreppunnar séu „mjög slæm“.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.