Sendinefnd frá ESB er stödd hér á landi 21. og 22. september til viðræðna við íslensk stjórnvöld um makrílveiðar. Ráðherrar sjávarútvegsmála á Írlandi, Englandi og Skotlandi hafa allir ritað Mariu Damanki, sjávarútvegsstjóra ESB, bréf á undanförnum vikum og krafist þess, að hún mótmælti einhliða ákvörðun Íslendinga og Færeyinga um makrílkvóta. Sjávarútvegsstjórinn gaf til kynna á einu stigi málsins, að hún mundi halda til Reykjavíkur til viðræðna við íslensk stjórnvöld. Viðræðurnar, sem hófust að morgni 21. september, eru hins vegar á milli embættismanna.
Um 15 fulltrúar frá ESB sækja fundinn og er John Spencer frá sjávarútvegsskrifstofu framkvæmdastjórnarinnar, skrifstofu Damanaki, formaður samninganefndarinnar. Í nefndinni eru auk fulltrúa framkvæmdastjórnarinnar fulltrúar aðildarríkja ESB, sem hafa hagsmuni af makrílveiðum, og fulltrúar hagsmunaaðila í þeim ríkjum.
Framkvæmdastjórn ESB fer með forræði samninga við þriðju ríki um fiskveiðimál og skiptingu flökkustofna. Fulltrúar ríkja, sem hlut eiga að máli, eru í einskonar ráðgjafahlutverki á fundunum gagnvart talsmanni framkvæmdastjórnarinnar.
Tómas H. Heiðar er formaður íslensku samninganefndarinnar, en auk embættismanna sækja fundinn fulltrúar Hafrannsóknastofnunar og hagsmunaaðila. Stefnt er að því, að viðræðunum ljúki fyrir hádegi 21. september. Samkomulag er um, að ekki verði skýrt frá efni viðræðnanna opinberlega, fyrr en að þeim loknum.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.