Skoskir sjómenn óttast, að deila milli stjórnvalda í Skotlandi og London dragi úr þunga makríl-málflutnings í þeirra þágu á fundi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ESB–ríkja í Brussel 27. og 28. september. Richard Lochhead, sjávarútvegsráðherra Skotlands, krefst þess að hafa orð fyrir bresku sendinefndinni í makrílmálinu, úr því að breski sjávarútvegsráðherrann situr ekki fundinn heldur Jim Paice, landbúnaðarráðherra.
Alex Salmond, forsætisráðherra Skotlands, varð að blanda sér í málið til að knýja á um forystu skoska ráðherrans um þetta mál. Stjórn Verkamannaflokksins fól vararáðherra forystu á ráðherrafundi innan ESB snemma á árinu, þegar rætt var um fiskveiðimál við Spánverja. Töldu Skotar þá freklega gengið á sinn hlut.
Á fundi sínum í Brussel munu ráðherrarnir ræða um afstöðu ESB á viðræðufundi um makríl í London 12. október, sem fulltrúar ESB, Noregs, Íslands og Færeyja munu sitja.
Við brottför sína frá Aberdeen til Brussel sagði Lochhead við blaðamann The Press and Journal í Aberdeen, að Skotar vildu, að samið yrði um makrílveiðarnar. Þeir myndu hins vegar ekki kaupa samning, hvaða verði sem væri. ESB-ráðherrar yrðu að forðast að gefa Íslendingum og Færeyingum til kynna, að þeir hefðu náð einhverjum árangri með ábyrgðarlausri framgöngu sinni.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.