Verðum að forgangsraða eins og aðrir segir utanríkisráðherra Norðmanna
Norðmenn eru að leggja niður fimm sendiráð í öðrum löndum. Þetta kemur fram í fjárlagafrumvarpinu, sem lagt verður fram í dag og Aftenposten segir frá í morgun. Sendiráðin, sem lögð verða niður eru á Fílabeinsströndinni, Kolumbíu, Austur-Timor, Slóveníu og Níkaragúa.
Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra, segist hafa verið spurður, hvers vegna Norðmenn leggi niður sendiráð. Þeir séu svo ríkir. Hann sagðist hafa svarað að það væri einmitt þess vegna sem þeir væru svo ríkir. Þeir yrðu að forgangsraða eins og aðrir. Gott samband við önnur ríki byggðist ekki eingöngu á því að hafa þar sendiráð.
Störe er sérstaklega spurður hvort sendiráðin í Eystrasaltsríkjunum verði lögð niður. Hann segir svo ekki verða í fyrsta umgangi. En það geti verið spurning um betri samræmingu.
Nú eiga Norðmenn diplómatísk samskipti við 186 ríki. Þeir voru með 110 sendiráð fyrir niðurskurðinn nú. Í utanríkisþjónustu Norðmanna starfa 1467 starfsmenn, þar af 815 heima og 652 í öðrum löndum.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.