Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur óskað eftir því, að efnt verði til sameiginlegs fundar utanríkismálanefndar alþingis og sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar strax eftir helgi um makríldeiluna við ESB og Noreg. Utanríkisráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sitji nefndarfundinn.
Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur óskað eftir umræðu utan dagskrár á alþingi þriðjudaginn 11. október um makrílmálið. Ráðgert er, að dagana 12. til 14. október verði málið til umræðu á sameiginlegum fundi fulltrúa Íslands, Færeyja, Noregs og ESB í London.
Í viðræðunum kemur ESB fram sem strandríki í skilningi hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna, því að ESB fer með gæslu hagsmuna sjómanna í Skotlandi og á Írlandi, sem hæst hafa látið vegna einhliða kvótaákvarðana Íslendinga og Færeyinga um makrílveiðar í lögsögu sinni.
Þrír framkvæmdastjórar ESB, á sviði sjávarútvegs, stækkunar ESB og viðskipta rituðu 7. október bréf til Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þar sem þeir lýsa þeirri skoðun, að makrílmálið snerti fleiri þætti en þá, sem tengjast stjórn fiskveiða. Náist ekki skjót lausn á deilunni spilli það trúverðugleika í samskiptum Íslands og ESB.
Jón Bjarnason og Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, svöruðu bréfi framkvæmdastjóranna 8. október og lýstu „megnri andstöðu við þá fullyrðingu ykkar, að makrílmálið nái “út yfir hreina fiskveiðistjórnun„.“
Evrópusamtökin, sem berjast fyrir aðild Íslands að ESB, segja í tilefni af þessum bréfaskiptum á vefsíðu sinni 8. október:
„Málið sýnir kannski e.t.v. að samningaviðræður um sjávarútvegsmál verða ekki eins og að drekka vatn, þegar aðildarviðræður Íslands og ESB hefjast af fullum krafti á næsta ári.“
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.