Brezkur fjárfestingarsjóður hefur gert alvarlegar athugasemdir við fjárstuðning, sem News Corporation, fjölmiðlafyrirtæki Ruperts Murdochs, hefur veitt tilteknum aðilum í aðdraganda bandarísku þingkosninganna í nóvember. Telur sjóðurinn að óeðlilegt sé að ráðstafa fjármunum hluthafa með þessum hætti heldur eigi einstaklingar, sem það vilja veita slíkan stuðning. Hefur sjóðurinn af þessum sökum ákveðið að greiða atkvæði gegn endurkjöri formanns endurskoðunarnefndar fyrirtækisins, sem það telur að eigi að fylgjast með greiðslum af þessu tagi.
Mótmælin koma í kjölfar þess, að Murdoch, sem er stofnandi og stjórnarformaður fyrirtækisins, hefur gefið 1 milljón dollara til bandaríska Viðskiptaráðsins, sem að jafnaði veitir frambjóðendum repúblikana fjárstuðning. Í ágústmánuði sl. gaf fyrirtækið sömu upphæð til samtaka ríkisstjóra úr repúblikanaflokknum. Rökstuðningur News Corporation fyrir þessum fjárstuðningi er að fyrirtækið veiti þeim stuðning, sem berjist fyrir hagsmunum viðskiptalífsins.
News Corporation er eitt stærsta fjölmiðlafyrirtæki í heimi. Það á Fox-sjónvarpsstöðina í Bandaríkjunum auk fjölda dagblaða, þar á meðal Wall Street Journal. Í Bretlandi er fyrirtækið stærsti hluthafi í Sky-sjónvarpsstöðinni og vill eignast hana að fullu. Nánast öll önnur fjölmiðlafyrirtæki í Bretlandi hafa sameinast um að mótmæla því. Fyrirtækið á einnig dagblöðin Times í London, Sunday Times, The Sun og News of the World.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.