Að kröfu lífvarða segir talsmaður-kostnaður talinn 50 evrur
Nú er deilt um það í Brussel, hvort Herman Van Rompuy, forseti Evrópusambandsins hafi mátt nota embættisbifreið sína til þess að aka sér og fjölskyldu sinni frá Brussel til Charles de Gaulle-flugvallar í París á leið í sumarfrí.
Talsmaður forsetans hefur staðfest, að ferðin var farin í „verndaðri“ bifreið og leggur áherzlu á, að slík vinnubrögð séu eðlileg þegar um svo háttsettann mann sé að ræða. Hann þurfi á vernd að halda allt árið um kring, líka þegar hann fari í frí. Þetta hafi verið gert að kröfu lífvarða forsetans. Þeir vilji að fjölskylda forsetans ferðist saman og að farangur þeirra fari með hópnum.
Ferðin frá Brussel til flugvallarins í Paris tekur um þrjá klukkutíma. Vegalengdin er 300 kílómetrar. Talsmaður forsetans sagði að samtals hefði verið um 500 km akstur að ræða. Bíllinn eyði um 10 lítrum á 100 kílómetra og benzínlítrinn kosti eina evru. Samtals hafi því kostnaður við aksturinn numið um 50 evrum.
Í frétt euobserver um málið kemur fram, að Barroso, forseti framkvæmdastjórnarinnar hefði ekki heimild til slíkrar notkunar á embættisbifreið. Hið sama eigi við um forseta Evrópuþingsins.
Þegar Van Rompuy var forsætisráðherra Belgíu mátti hann heldur ekki nota embættisbifreið með þessum hætti. Talsmaður núverandi forsætisráðherra Belgíu segir, að hann hafi aldrei notað embættisbifreið til slíkra erinda.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.