Breskir ferðamenn vilja halda sig utan evru-svæðisins og kjósa frekar að sækja á fjarlægar slóðir eða til Evrópuríkja utan evru-svæðisins samkvæmt nýjustu tölum.
Á Skyscanner, sem er flugbókunarsíða á vefnum, má sjá, að leit að flugi til evru-svæðisins hefur minnkað um 15% miðað við sama tíma á síðasta ári. Þá hefur leit að flugi til Bangkok aukist um 271%. Þrír flugvellir í Tyrklandi (utan evru-svæðis) komast í hóp 10 vinsælustu áfangastaðanna. Frá því í maí 2008 hefur breska pundið lækkað um 13% gagnvart evru.
Leit að flugi til Spánar, Frakklands og Ítalíu, sem löngum hafa verið vinsælustu ferðalönd Breta, hefur minnkað. Hið sama á við um Prag, þótt Tékkland sé utan evru-svæðisins. Leit að flugi þangað hefur fallið um 15%. Bretar hafa gjarnan haldið stekkjapartý í Prag.
Meðalverð á hótelum á evrusvæðinu hefur hækkað um 50% á síðasta ári.
Bretar sýna nú meiri áhuga en áður á að ferðast til Egyptalands, en leit að ferðum til Sharm el Sheik hefur aukist um 156%, þá hafa vinsældir tveggja áfangastaða Bandaríkjunum, Orlando og Los Angeles, aukist, þrátt fyrir að dollar hækki gagnvart pundi.
Heimild: The Daily Telegraph.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.